Lífsins elexír og bráðaeitrun!

abtl0007  Hér í den fóru menn víða um

  héruð og seldu "töframeðul"

  í litlum grænum eða brúnum

  flöskumWhistling.

  Stóðu uppi á sviðum eða kössum,

  hrópuðu og göluðu, og lofuðu eilífu

  lífi, afbragðs heilsufari og gæðalíðanCool.

  Aðstoðarmaður var látinn blanda

  sér í hóp fólksins sem safnaðist

  í kringum "töfralækninn", og var sá

  að sjálfsögðu, farlama á hækjum, eða

  jafnvel skreið með jörðu við illan leikErrm.

  Síðan þegar kom að því að sanna ágæti

  "töfrablöndunnar" sem að sjálfsögðu læknaði

  ÖLL mein og ALLA sjúkdóma, bauð aðstoðarmaðurinn

  farlama sig framPinch.

  Eftir as, mas og bras tókst að koma þeim farlama

  upp á "sviðið" þar sem hinn "ofurtöfrandi"

  sölumaður stóð með armana útbreidda.

  HALLELÚJAHalo!

  Einn gúlsopi, af lífselexírnum góða, og BINGÓ,

  sá farlama henti frá sér hækjum, reis upp úr

  duftinu og dansaði af fögnuðiWizard.

  Virðist húsfreyju á frétt þessari, að ekki

  alls ósvipað sé í gangi með "afeitrunarvörur"

  þessar.

  Er húsfreyja mest rasandi á, að annar hver maður

  í nútímalegu þjóðfélagi 21. aldar

  telji sig vera í þörf fyrir "afeitrun"W00t.

  Veit húsfreyja egi betur, en að nær hver einasta

  mannvera, er lifir á þessari jörð, hafi þokkalega

  góða lifur, þokkalega vel starfhæf nýru ásamt

  asskoti sterkum magasýrum og meltingu.

  Þetta þrennt hefur gífurlega hæfni til að

  brjóta niður, afeitra og skilja út úr líkömum

  okkar mannanna flest það sem okkur dettur í

  hug að láta ofan í okkur.

  Eftir að ein herleg máltíð hefur runnið í gegnum

  skrokk okkar, er fáheyrt að minnsti snefill af

  "eiturefnum" lifi af þá útreið, og sé að dóla um

  í blóðstraumi okkarWink.

  Erum ekki eitraðri en svo, að þegar að maðurinn með ljáinn

  hefur boðað okkur á sinn fund,

  vaxa fegurstu rósir í kirkjugörðunum, hvar undir

  okkar rotnandi skrokkar liggja.

  Og sjaldan sést jafn fagur gróður af trjám og blómum,

  og í kirkjugörðumJoyful.

  Svo hvaða "afeitrunarkjaftæði" er þettaShocking?

  Svo framarlega sem við höfum ekki fæðuóþol og látum brennivín og

  eiturlyf eiga sig, sem fæstar mannanna lifrar þola,

  erum við í bísna góðum málum, svona yfirleitt.

  Líkaminn sér um þetta afeitrunardæmi sjálfur!

  Upp á eigið einsdæmi!

  Auðvitað vill svolítið draga úr afeitrunarhæfninni,

  þá menn háaldraðir verða, en þá hreyfa þeir sig einnig

  minna og brenna hægar orku fenginni úr fæðu,

  svo minna þarf að borða....og þá aftur minna sem þarf

  að afeitra.  Svo sjaldgæft er eftir sem áður, að

  fólk verði "baneitrað" innvortis......í versta falli fær

  það "harðlífi" þá melting slappast.....nú og eða

  smá skerðingu á nýrnastarfsemi.

  Fullt af ágætis meðölum til, sem redda svoleiðis

  smotteríi, og ekkert þeirra auglýst sem "afeitrunarvara"Devil.

  Hitt er annað mál, að húsfreyja verður "baneitruð" á

  geði, þá reynt er að pranga inn á hana einhverri

  "töfra-afeitrunarvörunni".

  Á nóg af heilnæmu, fríu kranavatni, góða

  andlitsþvottapoka, "óafeitrandi plástra" á

  smáskeinur og óvítamínbættri hársápu, sjálf.

  En máske hún fari og "andi framan í" nokkra miður

  skemmtilega einstaklinga hjá T.R, og athugi hvort

  þeir detti dauðir niður, þar sem hún hvorki brúkar

  "afeitrunarplástra, afeitrandi andlitsskrúbb eða

  afeitrandi flöskuvatn"Devil.

  Nei, bara svona hugmyndWhistling.

 

 

 

 


mbl.is Afeitrunarvörurnar mýta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Heyr heyr - veistu ekki gróðann í þessum "bissness"?  Hugsaðu þér andlitskremið sem kostar 11.000 (ellefu þúsund) - heldur þú að það geri ekki gagn? Ég bara spyr - hver mundi annars kaupa það  

Sigrún Óskars, 5.1.2009 kl. 23:04

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Ellefu þúsundir!!!  Fyrir 20 ml. af kremgutli í krukku.  Jeminn!  Þetta er út í hött.

Sigríður Sigurðardóttir, 7.1.2009 kl. 17:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband