Allt of sein!

cute-funny-animals-01  ÁramótinW00t!

  Er þetta ekki hrikalegt?

  Húsfreyja búin að vera með

  Sekondia-úrið sitt "heilli sekúndu"

  á undan áætlun allt árið.Angry

  Það er nú bara slatti af sekúndum,

  ef þetta hefur fengið að viðgangast

  "árum saman"Shocking.

  Þá á húsfreyja að minnsta kosti

  heilar 48 sekúndur til góða, í það heila tekið...

  og það er nú bara næstum því heil mínútaWhistling.

  Þetta er altént tveir sopar af kaffi, og góður

  biti af súkkulaði með....að tímalegnd.

   Hvurslags "tímaþjófnaður" er eiginlega í gangi hér

  á móður jörð?

  Ætti máske húsfreyja, að fá að taka þessar 48 sekúndur

  út í fríi á árinu næsta 2009?

  Hmmm...ekki algalið.

  En snillingarnir hjá T.R. láta ekki að sér hæða í

  lok kreppuársins 2008Pinch.

  Fengu alla pappíra í lok nóvember og byrjun desember frá

  húsfreyju, með 3 daga millibili samt, svo þeir gætu endurgreitt

  henni rannsóknar- og sjúkrahússkostnað.

  Húsfreyja hefur nefnilega aldrei lent í slíkum

   heilsufarshremmingum áður, sem nýrnasteinar eru,

  og vissi ekki að "netbankakvittanir" dygðu ekki einar sér.

  Greiðsluseðlanir urðu að fylgja með líkaPinch.

  Jæja, en T.R. fékk greiðsluseðlana 3 dögum seinna,

  en aðra pappíra, og þá átti þettta nú að vera lítið mál.

   Je, rætAngry!

  Nú er T.R. "að sjálfsögðu" búið að senda húsfreyju

  "netbankakvittanirnar" til baka með pósti sem

  "ófullnægjandi" pappíra, og það rétt fyrir jól,

  og í dag fékk hún "greiðsluseðlana" sína líka...og merkilegt nokk

  líka sem "ófullnægjandi pappíraShocking!

  Engum snillanum þar niður frá datt í hug að

  "smella saman" fyrri pappírum merktum

  húsfreyju við þá seinni, sömuleiðis merktir húsfreyjuPinch.

  Er þó allt orðið "rafrænt" og tölvukeyrt þar um slóðir.

  En þar sem húsfreyju finnst líklegt er að "Gísli á Uppsölum"  hafi

  kennt T.R.- liðinu á kompjútera, þá er kannski ekki við öðru að búastDevil.

  Húsfreyja bauð bónda sínum, að hún skryppi eina herlega

  reisu niður í T.R. eftir áramót, með "margtéða" pappíra "SAMAN" í bunka.

  Træði þeim upp í "óæðri endann" á Grimmhildi Grámann sem

  þar ræður ríkjum, og biti nokkra  T.R-snillana "á háls" í leiðinni,

  bara svona til að "ná aftur niður" blóðþrýsting sínum og

  heiftarbræðiDevilWhistling.

  Bóndi húsfreyju "afþakkaði" pent, og ætlar sjálfur með

  pappírsdraslið niður á T.R..... sér að öðrum kosti á eftir

  glötuðu fé og innlögn spúsu sinnar á deild níu á KleppiW00t.

  Er húsfreyja búin að ráðleggja bónda að skreppa til

  Guðmundar heimilislæknis fyrst, og fá nokkrar róandi

   til að taka klukkustund fyrir "T.R.-ferð"LoL.

  Ekkert vit í að fá "slag" út af nokkrum skitnum þúsundköllum

  frá T.R.

  Góðar stundir.

  Kaffi til að róa taugarnar næst.
 


mbl.is Áramótunum seinkar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Solla Guðjóns

Hæjj.Ég vissi nú ekkert um þennan fróðleik sem í fréttinni er.

Takk fyrir ábendinguna.

Takk fyrir árið sem er að líða og GLEÐILEGT OG GÆFURÍKT KOMANDI ÁR

Solla Guðjóns, 30.12.2008 kl. 20:54

2 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Gott og gleðilegt ár óska ég þér og þínum

Heiður Helgadóttir, 31.12.2008 kl. 13:42

3 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Þakka sömuleiðis, vinkonur.

Sigríður Sigurðardóttir, 7.1.2009 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband