10.12.2008 | 18:18
FRÁBÆRT!...
....mamma.
Þá höfum við bara Jólin
TVISVAR á árinu".
Sjö ára djásnið hrifin af
frétt þessari.
"Já, það væri kannski ekki vitlaust"
svaraði húsfreyja.
Þögn smá stund, en svo kom:
"Nei, það er ekkert vit, mamma.
Jólasveinarnir gætu aldrei vaknað um
hásumar, til að gefa krökkum í skóinn"!
"Þeir þurfa nefnilega að hvíla sig svo mikið,
og sofa á sumrin, svo þeir séu hressir í
desember", djásnið búið að hugsa málið í tætlur.
"Já, líklega er best að hafa Jólin aðeins einu sinni
á ári", svaraði húsfreyja, "en það er nú samt gaman
að Jesú skuli eiga sama afmælisdag og Jón Sigurðsson
frelsishetjan okkar".
"En hann var ekki "jólasveinn", mamma", svaraði
djásnið að bragði, og þar með var málið útrætt.
Langt síðan að húsfreyja las að Jesú hefði fæðst í
júní, en ekki desember, en aldrei fengið nákvæman
dag fyrr uppgefinn.
Væri ekki verra ef boðberi kærleika á jörðu, Jesú
frá Nasaret, ætti fæðingardag á þjóðarhátíðardegi
Litla Fróns.
„Jesús fæddist 17. júní“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Góð myndin sem þú náðir í þarna!
Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.12.2008 kl. 13:54
Já, og bara nokkuð í stíl við tíðarandann Jóhanna, ekki satt?
Þakka þér kærlega innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 12.12.2008 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.