Nú er það SÚRT!

istockphoto_1431057-sweet-sour-fruit-pyramid-orange-lemon-watermelon  "Þú ert ekki nógu SÚR"!

  Doktorinn var harðákveðinn.

  Nú á sko að láta húsfreyju

  kýla á það.

  Drekka!

  Drekka!

  Drekka!

  Og það gallsúran sítrónusafaShocking!

  "Leysir upp oxalötin þín,og kemur í veg

  fyrir nýrnagrjótsframleiðslu", ekki hægt að

  hnika doktor.

  "Og borða kalk reglulega".

  Fékk svo húsfreyja tvær A-4 síður með löngum

  listum yfir það sem "alls ekki á að borða, eða

  lítið", og eina A-4 síðu með því sem "má" borðaPinch!

  Síðastnefndi listinn "mun styttri" en hinir, og nærri helmingur

  hans tekinn undir einar 20 tegundir af "jurtate",

  sem húsfreyju er óhætt að skólpa í sigCrying.

  Kartöflur út.

  Gulrætur út.

  Rófur út.

  Heilhveitibrauð út.

  Allar baunir út.

  Kakó út.

  Laukur út.

  Döðlur út.

  Súkkulaði út.

  Soyjamjólk út.

  Krækiber, bláber, rabbabari og kiwi út.

  Appelsínur,sítrónur, hnetur og marmelaði út.

  Olivur út.

  Svartur pipar út.

  Bjór út (nema í gleri).

  Og svo einhver haugur af matarkyns nammi

  sem má borða lítið af....DÆS!

  Svo nú verður það bara kjöt, fiskur,

  melónur, rúsínur, gúrkur og hrísgrjón

  serverað með "dassi" af dijon sinnepi,

  hunangi, káli, sykri, Cheerios og oregano.

  Og drekka nógu djö....mikið af gallsúrum

  sítrónusafa með, svo húsfreyja verði

  súrari en allt sem súrt er innvortisSick.

  Og alltaf gott að skella 4 bollum af 4 teg. af

  "jurtatei" í sig sem dessert, á eftirPinch.

  Merkilegt nokk, eðalvínin hvítu og rauðu

  eru "inn"......í hófi svo húsfreyja verði ekki

  "gallsúr alki" fyrir aldur framWhistling!

   SJÍSS!

  Eitthvað er melting húsfreyju ekki í nógu

  góðum gír, fyrst hún er að senda aðra hverja

  máltíð hennar í "grjótframleiðslu" í

  nýrum hennarAngry.

  Hvurslags "kreppulið" sér eiginlega um að

  stjórna því sem meltist í kroppi húsfreyju?

  Er húsfreyja komin með einhverja "míni-Dabba"

  í iður sín, sem sjá um að "sía"  á hálfri vinnslu,

  það sem þeir telja að sé gott fyrir hana og hennar skrokk,

  hitt sent beina leið í helv... "grjótið" í nýrunumW00t?

  Húsfreyja "mótmælir" svona "skítlegum"

  vinnubrögðum í meltingafærum sínum, og vill hafa

  sínar kartöflur, rófur og gulrætur Á SÍNUM DISKI

  við hverja máltíð eftir sem áður.

  Súkkulaðið ræðir hún ekki einu sinni....frekar

  "deyr" hún úr "overdose" af súkkulaði heldur en að

  gefa það eftirDevil!

  Kannski hægt að draga úr döðluáti....MAYBE...

  og annað er svona hægt að skoða....þá

  vel liggur á húsfreyjuLoL.

  En bévítans sítrónusafann getur húsfreyja

  sosum skólpað oní sig í stórum stíl...búin með

  heilan lítra af honum nú þegar, og svei,

  ef henni "súrnaði" ekki um augun af gleði þegar

  að hún heyrði með sinni "gallsúru ofurheyrn",

  nýru sín syngja YES, YES, YES af lukkuToungeLoL.

  "Gallsúrar gleðistundir"Grin.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband