9.12.2008 | 15:02
Nú er gaman.
"Ég ætla að skreppa út"
sagði sú tíræða.
"Það líst mér vel á",
húsfreyja brosti.
"Á að fara á djammið"?
spurði hún svo þá tíræðu glettinn.
"Neihei, því nenni ég ekki. Ég ætla
bara að heimsækja hana systur mína".
Sú gamla hló við.
"Já, og er hún jafn ern og þú" spurði
húsfreyja.
"Nú hún er "bara" 95 ára, svo hún er
altént ekki verri en ég", svaraði sú tíræða.
Góðar.
Svo erum við Frónbúarnir orðin "fræg af
endemum" alla leið til Ástralíu.
Vinkona húsfreyju þar segir í bréfi að
Ísland sé bara töluvert í fréttum þar,
og að við virðumst vera að taka á okkur
harðasta fallið í kreppunni.
Vonar hún að húsfreyja lifi ekki við sult og seyru,
og að árið 2009 verði okkur öllu skárra.
O jæja, húsfreyja borgar risavaxinn matarreikning
vikulega fyrir sína 3 manna fjölskyldu og kött,
eins og meginþorri Frónbúa.
Er í basli með verðtryggð lán af íbúð
sinni líkt og aðrir, og karlinn hennar
stressar sig í tætlur yfir bílaláninu.
En allt möndlast þetta áfram, þó að
fyrrum "settu á hausinn"- eigendur
tískuverslana í Reykjavík, séu búnir
að kaupa verslanir sínar aftur fyrir slikk,
og mótmælendur á Alþingi séu farnir að bíta.
Húsfreyja ætlar að skrapa saman nokkrum
þúsundköllum fyrir jólaklippingu handa
sjö ára djásninu, og dúllast með hana
á hárgreiðslustofuna....nema sú stofa sé
farin á hausinn, og lokað sé í 4 klukkutíma vegna
heitra kaupsamninga fyrrum eigenda
um þrotabúið, svo þeir geti skellt eign sinni
á hana AFTUR fyrir kvöldmat.
"The Icelandic Way"!
Hér er alltaf myljandi, dúndrandi fjör, grín
og gaman uppi á litla Fróni.
Bestir voru samt Spaugstofumenn með sína
útgáfu af "Ógnareðli" síðasta laugardag.
Þeir sem misstu af, geta kíkt á vefsjónvarpið
og verið með....er nefnilega sjálfstætt framhald
af "Skítlegu eðli".
Góðar stundir.
Athugasemdir
Gott hjá þeirri tíræðu
Solla Guðjóns, 9.12.2008 kl. 16:04
Sigrún Óskars, 9.12.2008 kl. 17:35
útfærsla spaugsmanna á ógnareðli var mjög fyndið
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir, 10.12.2008 kl. 13:20
Já, Sollan sú tíræða er frábær.
Það fannst mér, Bryndís, hló mig máttlausa.
Þakka ykkur öllum innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 10.12.2008 kl. 20:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.