24.11.2008 | 11:25
Rosalegt að klikka svona...
...á þessu.
Húsfreyja búin að stunda jóga
alveg græn, árum saman.
Taldi þetta vera góðar æfingar
til að samhæfa huga og hönd, og
væri í leiðinni prýðilega
góð leið til að viðhalda hreyfifærni.
Svo er hún bara að "tilbiðja" guði
hindúa og er orðin gjörspillt og eitruð
af þeirra trúarbrögðum.
Veit samt eftir sem áður núll og nix um
guði hindúa og trúarbrögð þeirra......ja
rámar kannski aðeins í "einhvern með
fílshaus" sem er í guðatölu þarna hjá þeim....
en hafið samt húsfreyju ekki fyrir því, gæti
bara verið að slá saman við "úlfalada spámannsins"
eða asna Jesú frá Nasaret.
En þetta meina þeir vitru herrar þeirra
múslima þarna í Malasíu, að hendi saklausar sálir
er leggjast í jógaiðkun.
O, sei!
Jaso, víða kreppir skóinn að múslimum,
og "margt" hægt að banna fyrir dómsstólum
þeirra.
Er skemmst að minnast á Barbie, hina brjóstagóðu,
sem er úthrópuð og fordæmd í Íran, á meðan
Sádarnir eru orðnir heitir út í öll gæludýr,
og mega nú hundaeigendur ekki lengur
viðra hunda sína og ketti úti við þar um slóðir.
Sér húsfreyja fram á massaneyð Sádanna
með hundkvikindi sín...allir sem einn með mergjað harðlífi.
En húsfreyja ætlar að endurmeta jógadiskinn
sinn, og athuga hvort hún finni ekki
þræl-leynileg hindúaguðatákn og skilaboð í annarri hverri
æfingu.
Brenna svo diskinn, íklædd síðum kufli úti
í garði, ásamt Mogga síðustu 3 vikna og
Fréttblöðum frá sama tíma!
Jóðla Faðirvorið með, og svona að lokum, vona heitt og
innilega að grannarnir sendi ekki húsfreyju
í "andlegt" mat á níuna á Kleppi.
Ekkert jóga fyrir múslima | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.