Rosalegt að klikka svona...

yoga4lr  ...á þessuShocking.

  Húsfreyja búin að stunda jóga

  alveg græn, árum saman.

  Taldi þetta vera góðar æfingar

  til að samhæfa huga og hönd, og

  væri í leiðinni prýðilega

  góð leið til að viðhalda hreyfifærni.

  Svo er hún bara að "tilbiðja" guði

  hindúa og er orðin gjörspillt og eitruð

  af þeirra trúarbrögðumW00tGetLost.

  Veit samt eftir sem áður núll og nix um

  guði hindúa og trúarbrögð þeirra......ja

  rámar kannski aðeins í "einhvern með

  fílshaus" sem er í guðatölu þarna hjá þeim....

  en hafið samt húsfreyju ekki fyrir því, gæti

  bara verið að slá saman við "úlfalada spámannsins"

  eða asna Jesú frá NasaretDevil

  En þetta meina þeir vitru herrar þeirra

  múslima þarna í Malasíu, að hendi saklausar sálir

  er leggjast í jógaiðkun.

  O, sei!

  Jaso, víða kreppir skóinn að múslimum,

  og "margt" hægt að banna fyrir dómsstólum

  þeirra.

  Er skemmst að minnast á Barbie, hina brjóstagóðu,

  sem er úthrópuð og  fordæmd í Íran, á meðan

  Sádarnir eru orðnir heitir út í öll gæludýr,

  og mega nú hundaeigendur ekki lengur

  viðra hunda sína og ketti úti við þar um slóðir.

  Sér húsfreyja fram á massaneyð Sádanna

  með hundkvikindi sín...allir sem einn með mergjað harðlífiPinch.

  En húsfreyja ætlar að endurmeta jógadiskinn

  sinn, og athuga hvort hún finni ekki

  þræl-leynileg hindúaguðatákn og skilaboð í annarri hverri

  æfingu.

  Brenna svo diskinn, íklædd síðum kufli úti

  í garði, ásamt Mogga síðustu 3 vikna og

  Fréttblöðum frá sama tímaTounge!

  Jóðla Faðirvorið með, og svona að lokum, vona heitt og

  innilega að grannarnir sendi ekki húsfreyju

  í "andlegt" mat á níuna á KleppiGrin.


mbl.is Ekkert jóga fyrir múslima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband