14.11.2008 | 17:18
Og til að halda upp á...
...viðurkenningu ESB á
tilverurétti "boginna gúrka",
skellti húsfreyja sér í Bónus
og keypti sér 20 sentrimetra
langa gúrku, með "nákvæmlega"
11 MILLIMETRA sveigju á
hverja 10 sentimetra, samkvæmt
"vísindalegum og hárnákvæmum"
mælingum húsfreyju.
Er nú húsfreyja kengspennt að
hefja gúrkuátið með kvöldinu,
og athuga hvort þessi eini MILLIMETRI
í "meiri sveigju" skipti ekki sköpum með
bragðgæðin.
Jamm, menn dunda sér við ýmislegt
bráðskemmtilegt í ESB.
Aflétta banni við bognum gúrkum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Halló! þú ferð ekki að borða "ólöglega" gúrku eða er hún "ólöguleg"?
Sigrún Óskars, 14.11.2008 kl. 20:45
Ó jú, Sigrún mín. Er að vísu ekki öll burtétinn, en komin langt. Og svei mér, ef það var bara ekki fínasta gúrka, bragðið, og ég fann ekkert "millimetra-sveigju-bragð" af henni.
Sigríður Sigurðardóttir, 15.11.2008 kl. 12:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.