5.11.2008 | 17:54
Í borg Davíðs...
....skal að sjálfsögðu hafa peningaseðla
sérmerkta honum.
Var það ekki einhvert ægilegt
peningaséni sem býr í London, sem
sagði í sjónvarpinu um daginn,
að nú yrðu Frónbúar að fara að
"prenta" seðla grimmt, svo þjóðfélagið
tæki ekki kollsteypu beina leið niður
til helvítis.
Ekki það að húsfreyja sjái, að okkur
Frónbúana muni um eina kollsteypuna
þangað niður.
Erum nú þegar búin að fara einar 5 eða
6 kollsteypur til "þess í neðra" fjárhagslega,
svo okkur hefði ekki munað um eina enn.
"Sá í neðra" sjálfsagt að verða hringlandi hringa-snarvitlaus
á öllu þessu pakki frá litla Fróni, sem puðrast niður til hans
og vill "virkja" hita helvítis og búa til orkufyritæki í kringum
málið og selja hlutabréf grimmt á öllum
fjármálamörkuðum heimsins með "minimal áhættu"!
Dabbi líklega búinn að leggja "blessun" sína á málið,
svo framalega sem hann fái prentaða 10.000 króna seðla
með mynd af sjálfum sér í massavís.
Bankaeigendur allir og útrásarvíkingar þá logandi "heitir"
að fá djöfsa til að afsala sér einkarétti á
"hverum vítis", og hanga vælandi í "þeim
kolsvarta" með pappírsbleðla í fjórriti og
hafa heilan andsk... helling af lögfræðingum sér
til fulltingis!
Eða þannig getur húsfreyja séð málin fyrir sér.....
svona í gríni.
Brilliant verkefni hjá listnemum á krepputímum,
en hálf vorkennir húsfreyja afgreiðslufólki
sem lét glepjast og gaf sjö þúsund
"alvöru verðlausar krónur" til baka.
Notaði seðil með mynd af Davíð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér hreint býður við þessum seðli........gott að hann var falsaður
Solla Guðjóns, 6.11.2008 kl. 11:31
Jamm, manni verður hálf ómótt, Sollan mín.
Sigríður Sigurðardóttir, 9.11.2008 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.