30.10.2008 | 17:12
Ægileg kanína.
KratsjúBANG! ÞRUUUUMA!!!
Dökkærða smávaxna dísin,
kom fram úr barnaherberginu
eitt þrumuský, með tárin í augunum
og rauk fram í forstofu.
-HÁTT SNÖKT-
Húsfreyja stökk upp og spurði
áhyggjufull hvað amaði að.
"Þær sögðu að ég hefði valið kall,
sem ég valdi ekkert....snökt"
Hrikalegt!
Foreldrar þeirrar smávöxnu enn í vinnunni,
og ekki þýddi að barnið færi heim, og
biði í kuldanum fyrir utan.
Brýn þörf fyrir góð "mömmu-inngrip".
Sú smávaxna sett við eldhúsborðið,
dregin fram skúffuterta, mjólk og
svo Daim-súkkulaði í eftirrétt.
Sú stutta lét sér það vel líka, á meðan
að húsfreyja reyndi að fá botn í
"óveðrið" sem skollið hafði á í barnaherberginu.
Jú, djásnið og dökkhærða háa dísin héldu
því stíft fram, að "kanínan" sem ENGINN
vildi leika hefði komið í hlut þeirrar smávöxnu.
"Loft var þrútið og lævi blandið", þá húsfreyja
bauðst til þess að "taka að sér" kanínuræfilinn.
Og vildu þær ekki líka koma fram í skúffurtertu
og mjólk.
NEI!
Húsfreyja fór fram aftur og stússaði í kringum
þá smávöxnu.
Þær "þrútnu og læviblöndnu" fylgdu á eftir, þungar á
brún.
Djásnið sagði ekkert gaman, þegar Elínóra væri
hætt í Pet-Shop.
Húsfreyja bauðst aftur til að leika kanínuna, og
hvort þær vildu ekki líka tertu, mjólk og Daim.
NEI!
"Hvurslags hrikalegi svíðingur er þessi kanína"?
hugsaði húsfreyja.
En þær "þrútnu og lævi blöndnu" voru farnar
að gjóa augunum á kræsingar þeirrar smávöxnu.
"Þið þurfið ekkert að hafa kanínuna með" sagði
húsfreyja "komið nú og fáið ykkur köku og mjólk,
og ræðið málin".
Og skvísurnar settust. Eftir hressilega sykurbombu
ásamt mjólkurglasi, voru friðarumleitanir húsfreyju
komnar í góðan gír.
Og aftur orðið heiðskýrt og ekki ský að sjá á lofti.
Búið að samþykkja vopnahlé, og rokið inn í
stofu og "babúskur" húsfreyju settar í leikinn.
Eftir músík, dans, hreyfileik og babúskur var
aftur ákveðið að fara inn í barnaherbergi að
leika í Pet-Shop.
Úúú... húsfreyja bauðst enn og aftur til að
"leika" kanínuna ógurlegu, en þess reyndist
ekki þörf, því þær "ætluðu ekki" að rífast.
Je ræt!
Þegar 3 sjö ára skvísur eru komnar saman
í Pet-Shop, er betra að eiga góðar birgðir
af skúffukökum, mjólk og súkkulaði.
Og hlusta vel eftir "þrumum og eldingum"!
Var svo í morgun með tengdó á augndeildinni, húsfreyja.
Tengdamútta í sprautu á meðan húsfreyja og
tengdapabbi fengu ævisögu eins aldraðs
herramanns beint í æð.
Sá beið einnig eftir "vinkonu" sinni, og fór
vítt um völl í spjalli sínu við vin sem hann
hitti á biðstofunni.
Sá var ekkill, er var nýbúinn að kaupa sér
íbúð með "vinkonu", var að pæla í því að
versla sér "golfbíl" fyrir 300.000 krónur,
taka þátt í næsta Bridge-móti á Selfossi
og skreppa í eina herlega reisu til
sólarlanda í vetur.
Ræddi almennt heilsufar, skilnaði, giftingar og
andlát bróðurparts allra öldunga á Selfossi í leiðinni.
Og soninn sem var í vandræðum og ekki sáttur við
pápa gamla......jamm, en hann átti altént íbúð
peyjinn.
Ekki nokkur "kreppa" í öldungi, og hann að njóta
lífsins til fullnustu, þrátt fyrir böl og alheims grín.
Og dagurinn kaldur og blár, en sólartær.
Fínn dagur þetta, að mati húsfreyju, þó hún sé
á fljótandi fæði fyrir "steinbrjótinn" á morgun.
Góðar stundir.
Athugasemdir
Heiður Helgadóttir, 31.10.2008 kl. 12:30
alltaf fjör hjá þér systir kær......sjáumst.
Árný Sigurðardóttir, 31.10.2008 kl. 19:57
Já ljúfastar, hér er alltaf stuð, grín og gleði!
Sigríður Sigurðardóttir, 1.11.2008 kl. 13:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.