28.10.2008 | 17:51
Öðlingar!
Á bernskuárum húsfreyju í
Eyjum, bjó ætíð nokkur fjöldi
Færeyinga í bænum.
Þeir komu fyrst til Eyja til þess eins
að vinna eina vertíð, en féllu svo fyrir
gullfallegum Eyjameyjum og ílentust.
Pabbi heitinn vann með allmörgum
Færeyingnum og það voru sko menn með
hjörtu af skíra gulli og sem geisluðu af
einskærri manngæsku.
Eða það sagði faðir húsfreyju ætíð.
Gátu dottið hressilega í það, og slegist
á böllum, en mættu svo bljúgir og iðrandi
daginn eftir með fullan bréfpoka af ávöxtum
til þeirra, sem verst höfðu fengið að kenna á
hnúum þeirra.
En pabbi hafði stundum þann starfa sem ungur
maður að aðstoða við dyravörslu á Týrsböllum,
og varð stundum fyrir höggum, þegar hann var að
skilja á milli í slagsmálum.
Og alltaf voru það Færeyingarnir sem urðu alveg
miður sín, ef pabbi fékk högg frá þeim, og ætíð
var mætt með glaðning og innilegar afsökunarbeiðnir
til hans daginn eftir.
Pabba þótti vænt um þetta, og mat þá færeysku
mikils.
Voru einnig atorkumiklir og duglegir í vinnu, og gott
að hafa þá er mikið reið á.
Þá þrærnar hans Einars Sigurðssonar "ríka"
voru steyptar út í sjó, var það pabbi og
tveir Færeyingar sem tóku það að sér
að "kafa" í öllum veðrum að sumarlagi,
niður á nokkurra metra dýpi og steypa
undirstöður og gólf þrónna.
"Heitir" blautbúningar ekki til í Eyjunum
á þessum árum, og menn gátu aðeins verið
stutta stund í einu í kafi vegna kulda sjávars.
En þetta gekk, og Einar ríki fékk þessar fínu
þrær.
Kafararnir fengu hins vegar "bónus" frá þeim
ríka, og kom málverk eftir Engilbert listmálara
í pabba hlut. Hangir enn upp á vegg heima
í stofu hjá móður húsfreyju.
Húsfreyja er ekki hissa á stuðningi þessum
frá færeysku þjóðinni við okkur Frónbúana.
Þetta eru og verða bestu frændur okkar af
norrænu kyni og eru hinir mestu öðlingar
allra tíma....þó þetta sé bara lán.
Færeyingar vilja lána Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.