24.10.2008 | 12:36
Sá hlær best sem...
...síðast hlær, kæri norski frændi.
Og þá fyrst spyrjum við að leikslokum.
Virðist húsfreyju Ottó þessi nokkuð
heitur í garð Frónbúa, svo halda mætti
að hann hafi látið glepjast af "útrásarmönnum"
og fjárfest grimmt í verðlausum (skeini-)pappír.
Eitthvað þá orðið fátæklegt af saltstöngum og
glundri í flöskum hjá honum sjálfum...eða hvað?
Og heldur er það slæmt afspurnar fyrir hið mikla
veldi Noregs, ef "ræpuklessa úr iðrum jarðar"
var fýsilegri kostur til búsetu fyrir vaska norska
víkinga hér í den.
Hvað vill hinn bráðsnjalli Ottó þá kalla sitt heimaland?
Og eitthvað telur hann Frónbúa fjöruga og
hugmyndaríka þá kemur að því að fjölga
mannkyninu, svona ala doktor Moroe!
Húsfreyja veit auðvitað ekki hvort húsdýr
hafi þótt góð til "þvílíks brúks" í Noregi
í gegnum aldirnar, en telur nokkuð
öruggt að slíkt hafi ekki verið mikið
iðkað uppi á Litla Fróni.
Væru vart íslenskar konur rómaðar
fyrir fegurð og glæsileika um víða veröld,
ef Frónbúar hefðu blandast húsdýrum.
En Otto Jespersen hefur þessa þekkingu
kannski úr eigin sveit og eigin landi, og ætlar
Frónbúum að hafa gert slíkt hið sama?
Hvað veit maður.
En gott að vita að frændur vorir, norsararnir
eru í góðum gír í gríninu, hvorki rætnir né
niðurlægjandi!
En húsfreyja verður að játa, að það gleður
óneitanlega hjarta hennar á þessum síðustu
og verstu tímum að lesa svona fréttir.
Hún er svo innilega glöð og fegin að
forfeður hennar höfðu það góða vit
að koma sér burt frá stað, sem var
greinilega "talsvert miklu verri" en
ræpuklessa úr iðrum jarðar.
Norðmenn draga Íslendinga sundur og saman í háði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Voðalega er fólk hársárt. Hver er munurinn á Ottó og Spaugstofunni?
hdj (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 12:59
Kjære Otto
Ja er det ikke rart at de Nordmenn som bodde i Norge i sin tid ville heller til Ísland en å leve som underkuet fjösnisse í norge bæ bæ
Men jeg synes du er fin Otto, det var synd vi ikke traff hverandre når jeg bodde i Norge, der misstet du mye du , verst av allt, jeg får ikke sett deg på TV'n engang jeg får bare inn Nrk1 og 2, kan ikke du ordne det, så kan jeg le av vitsene dine.
Bare fortset du, vi tåler det ja der mötte morra si
Hilsen Dagbjört
Dagbjört Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 24.10.2008 kl. 13:25
O jæja, held nú samt að Spaugstofan sé ekki það rætin enn að gera okkur að úrkynjaðri ræpuklessuþjóð. En hver veit...eigum sömu rætur og norsarinn, svo aldrei að vita hvenær rætni húmorinn dúkkar upp í Spaugstofunni.
Sigríður Sigurðardóttir, 24.10.2008 kl. 13:25
Já, Dagbjört við ergjum okkur ekki þó norsararnir glotti við tönn af óförum þjóðarinnar. Eru sjálfsagt enn sárir yfir því að Leifur Heppni skyldi ekki fæðast í Noregi.
Sigríður Sigurðardóttir, 24.10.2008 kl. 13:33
Háðfuglar eru nú þeim gáfum gæddir að gera lítið úr sjáfum sér á kostnað annara.........veit ég hljóma móðguð.........ég er móðguð samt er þetta svoldil snilld hjá honum.
Solla Guðjóns, 24.10.2008 kl. 14:52
Jamm, Solla hann er snilldar-rætinn í háðinu þessi, enda þorir hann ekkert í viðtöl á eftir, karlinn. Veit sjálfsagt að hann fer hressilega yfir strikið.
Sigríður Sigurðardóttir, 25.10.2008 kl. 17:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.