Regnbogadagur, en fjölmiðlamyrkur.

rainbows.com  Húsfreyja átti vaktarfrí í dag.

  Sól og regn til skiptis yfir borginni

  með ægifögrum regnboga sem prýddi

  himnafestingunaInLove.

  Kötturinn kúguppgefinn eftir

  "breimhremmingar" síðustu daga,

  lagði sig í hjónarúminu.

  Húsfreyja lagðist hinsvegar í lestur

  blaða og netfrétta.

  "Fóstureyðingaskip í höfn"....sjíss ekki

  hljómað það fallega, en reyndist svo

  frétt af hollensku skipi, sem siglir um

  katólsk lönd aðallega og býður konum sem

  þess þurfa fóstureyðingu.

  Jamm, meikar sens, hugsaði húsfreyja,

  katólikkar ekki frægir fyrir að leyfa konum

  fóstureyðingar, nema þær hafi lent í nauðgun.

  "Líkfundarmaður á kafi í dópverksmiðjumálinu

  í Hafnarfirði"!  Sá ungi maður þyrfti nú eitthvað

  að endurskoða líf sitt, hugsaði húsfreyja.

  Að eyða lífinu innan um steindauða og eiturlyf

  virðist húsfreyju frekar ógæfulegt...nema

  maðurinn hyggi á námskeið í "líksmurningum"

  ala Egypta hina fornuWink.

  Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna vildu ekki

  íslendinga....Davíð konungi stolið í Danaveldi,

  og kvartað yfir Bretum í NATO.

  PAH!!

  Húsfreyja dreif sig út i regnbogadaginn,

  sendi vinkonu í Noregi smá glaðning,

  náði í djásnið í skólann, og skrapp með

  hana að skoða Korputorg.

  Verslaði meira segja 2 nýjar mottur í

  svefnhebergið í Europreis, kuldaskó

  á 2000 krónur á djásnið, og splæsti svo

  pizzu í matinn.

  Djásnið alsæl með skóna, og vill helst vera

  í þeim innanhúss líka.

  Og hvert sem húafreyja kom, í dag var

  fólk að versla.

  Að vísu töluvert meira af fólki í "designfötum"

  í verslunum, sem það sést annars lítið í.

  Og lífið gengur sinn vanagang, engin panikk,

  ekkert fár....asskoti flott stytta sem kunningi

  gaf bónda, er kom heim frá Danmörku nú

  á dögunum...stór og "konungleg"....Devil.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Og þú ert bara að kaupa skó í kreppunni, og mottur líka, mér lá næstum því við yfirliði, og pizzu í matinn, hvurslags bruðl er þetta á krepputímum.

Eigðu góðan dag mín kæra, gott að þið getið lifað eins og að ekkert sé. ekkert kreppu væl hjá ykkur

Heiður Helgadóttir, 18.10.2008 kl. 09:32

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Já, vinkona, bruðlað upp í topp í gær.  Heilar 12 þúsund krónur fuku, fyrir öllu því sem húsfreyja verslaði.  En motturnar eru flottar, og skórnir slóu í gegn....hmmm....kannski "kreppuóráðsíukast" að hrjá mig?  En væl er ekki á döfinni.

  Ljós og gleði til þín.

Sigríður Sigurðardóttir, 18.10.2008 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband