16.10.2008 | 21:18
Gimme, gimme, gimme...
....a man after midniiiiiigt, ABBA er í botni
og djásnið hringsnýst í æðislegum dansi
á stofugólfinu.
"Mamma, þetta er uppáhaldslagið mitt".
Húsfreyja er aftur orðin 15, og er komin
á annað gólf í huganum að dansa trylltan
dans við myljandi fína músík ABBA.
Þá voru útvíðar buxur í tísku, skræpóttar
mussur, leðurjakkar og útprjónaðar peysur.
Hallærislegt? Ekki spurning!
En síðan hvenær hefur nokkur unglingatíska
staðist tímanna rás og þótt ofurflott, þegar
litið er til baka?
Aha. Akkúrat!
En merkilegt nokk, góð tónlist stendur alltaf
fyrir sínu.
Og nú er djásnið komið á bólakaf í unglingamúsík
húsfreyju....og svei ef húsfreyja er ekki aftur
farin að tyggja tyggjó, naga hárendana, og
skella sér í Travolta-diskó-stellingar af og til.
Verst að nýru húsfreyju mótmæla of miklum
hristingi og skakstri, og svo lendir hún jafnvel
á bráðavaktinni með grjóthnullung, ef hún bremsar
ekki dansinn í botn í miðju "Dancing Queen".
Húsfreyja þolir ekki spítala, nema sem vinnustaði.
og alls ekki eilífar stungur, rannsóknir og vafstur.
Er erfiður "sjúklingur", er með meiningar um hvað
sé að sér, hvaða meðferð eigi að beita, hvaða
rannsóknir skuli framkvæma.
Spyr "læknana" þar til þeir gefast upp og
útskrifa bévítans hjúkkuskassið, útúr dópað
og í keng, en Guðs lifandi fegið að komast heim.
En er nú komin á "bíp"-lista í steinbrjótinn, því
húsfreyja hefur engan hug á því að leyfa vinstra
nýra sínu að tapa sér í grjótspýtingu, eins og það
hægra gerði!
Sei, sei NEI!
Brjóta, brjóta, brjóta grjót fyrir hádegi, gæti þá orðið
texti sunginn við lagið Gimme, Gimme með ABBA.
House næst.
Athugasemdir
Þetta er rosalegt að vera með svona grjótnámu innan í sér.....gæti kannski beðið Mr:Pálmasom að ribba aðeins fyrir þig
Ég fór á Mama mía um daginn og vóoo.
En haltu þig á mottunni svo þú eigi tapir öðru nýra.
Knús á þig og nudd í nýrnastað hjúkkuskassið mitt
Solla Guðjóns, 16.10.2008 kl. 22:00
Jamm, ekki er það spennandi Sollan mín, en eigi að síður eitthvað sem hægt er að laga og lækna, og því er ég fegin og mjög þakklát. Verra að fá ólæknandi sjúkdóm og illvígan.
Hmmm...er Pálmason flinkur í "ribbingum"? Ef þeir Landspítalamenn klikka á grjótinu, þá hef ég kannski bara samband...ha?
Sigríður Sigurðardóttir, 17.10.2008 kl. 20:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.