18.9.2008 | 08:20
Gott mál fyrst engin..
....er pressan að sækja vinninginn.
Væri verra ef skilyrði fylgdi um að leysa
út vinninginn á næstu 10 -15 árum.
Enginn veit sína ævi fyrr en öll er, segir
máltækið, og ósköp er notalegt að lifa
áhyggjulaus og óvitandi um síðustu stund.
Og víst væri fínt að hafa tryggan stað
fyrir "hylkið", í góðum kirkjugarði, þegar þar að
kemur....svona fyrir eftirlifandi ástvini, bæði
gæðalega og fjárhagslega.
Verra að skilja ættingja eftir í stórtjóni
fjárhagslega, með því einu að hrökkva upp af.
Svo þetta er "brilliant" hugmynd að happdrættisvinningi,
að mati húsfreyju.
Ítalinn nokkuð klár.
Vann ókeypis jarðarför í happdrætti - vinningurinn er ósóttur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Svo máttu gefa öðrum vinninginn ef þú vilt! Þetta er veglegur happadrættisvinningur, því það er aldeilis ekki gefins að hrökkva upp af.
Sigrún Óskars, 21.9.2008 kl. 09:51
Hmmmm, Sigrún við gætum kannski bjallað í "útfararstjóra" á næsta stóra hjúkkufund, og platað þá til að "donera" eins og tvær jarðarfarir, svo verður spilað bingó í fundarlok, og vinningar verða konfektkassi, kertaskreyting frá Blómaval og svo jarðarfarirnar í aðalvinning.
Sigríður Sigurðardóttir, 22.9.2008 kl. 22:51
Góð hugmynd
Sigrún Óskars, 22.9.2008 kl. 23:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.