15.9.2008 | 11:37
Fékk ægilegt kast,kast,kast....
....nýrnasteinakast, kast, kast.
Og nýrnasteinar húsfreyju tvístruðust
tvist og bast, tvist og bast.
Einn bévítans nýrnasteinadrullusokkurinn,
skellti sér í langa ferð eftir mjóum þvagleiðara
niður í blöðru.
Átsj...Æ.....óóó...
Var mætt á slysó í blóðprufur, þvagprufu,
laserrannsókn á kviðarholi um klukkan
fjögur síðdegis í gær.
Heilu helv....haugarnir af steinum í báðum
nýrum, og einn á "niðurgangi" hægra megin
Og dugði ekkert minna en að gista á
"skammverudeildinni" í nótt.
Þar sem húsfreyju flökrar meinlega af
öllum sterkum verkjalyfjum, s.s. Morfíni,
Confortid, Parkodín forte...og ælir eins
og múkki, þá slíkt fer inn í hennar
yndislega blóðrásarkerfi, voru góð ráð
dýr, þegar kom að því að verkjastilla
húsfreyju.
"Peth. og Phen. 25mg +25mg beint í æð"
stakk húsfreyja upp á.
Og það fékk hún, gegn því þó að prófa
einn Confortid stíl.
Ældi svo eins og múkki allt kvöldið og
fram á nótt, af bévítans Confortidinu,
og frábað sér frekari verkjalyf, nema ef
Peth. og Phen kæmi án skilyrða.
Var það að lokum samþykkt, þó greinilegt
væri, að læknum og hjúkkum þætti þetta
lúsarskammtur, sem dyggði skammt á
ekkisens verkinn.
"Skítt með það og lago" sagði húsfreyja,
"mitt val að þjást svolítið. Er með háan
sársaukaþröskuld og þoli vel sársauka
upp að vissum mörkum, þá bara steinligg ég".
"Og sá sem er í öngviti finnur enga verki,
en ég hef hvorki góðan haus né maga þegar
rótsterk verkjalyf eru annars vegar....svo
gefið mér bara Peth. og Phen. og svo
Paratabs".
Og það fékk hún, og varð ekki flökurt, og því
síður þurfti hún að æla.
Í morgun hlassaði helv...grjótið sér svo síðustu
millimetrana niður í blöðru...hallelúja, þvílík
sæla, og húsfreyja þar með útskrifuð med det samme.
Þarf að vísu að mæta til þvagfæramyndatöku í
byrjun okt. því nóg er hún með af fjandans
grjótinu í "báðum" nýrum sínum. Og búið að
setja Eirík Jónsson í það að fylgjast með
húsfreyju og "grjótmulningsvélum" hennar,
"nýrunum".
Er nú húsfreyja að pæla alvarlega í því hvort
hún eigi að skella sér í "malargrjótsbuissnesinn",
selja hvern stein rándýrt, en sandurinn verður
heldur ódýrari.
Jamm, húsfreyju fellur alltaf eitthvað til.
Athugasemdir
æææææ en peth er ógeðslegast af öllu!!!!!!!!!!
Hólmdís Hjartardóttir, 15.9.2008 kl. 11:51
Jamm, en samt það eina sem ég þoli, í litlum skömmtum
Sigríður Sigurðardóttir, 15.9.2008 kl. 15:47
Æj Æj Æj ekki gott - þvílíkir verkir sem þetta grjót getur valdið. En þú ert komin með sjálfan yfirlæknirinn í málið - hann er góður - trúðu mér (vinn með þessum mönnum).
Kannski hægt að slípa steinana og gera skartgripi = jólagjafahugmyndir.
Sigrún Óskars, 15.9.2008 kl. 18:46
Já, ekki slæmt að fá E.J. í málið, Sigrún......bara assvíti góð hugmynd hjá þér með slípaða grjótið.
Sigríður Sigurðardóttir, 15.9.2008 kl. 22:52
grjót,steina í jólagjöf.humm .....hvað með kuðunga?eða þú gefur M'ER bara beverly 1 og 2.
arný (IP-tala skráð) 16.9.2008 kl. 19:31
Peth og Phen..hvað er það nú ??
Gott að þú ert að brjóta þetta af þér...
Solla Guðjóns, 16.9.2008 kl. 19:55
Lofa engu með Beverly Gray systir, er erfiða að fá þær en "hálsmen úr nýrnasteinum".
Pethidin Sollan mín, er sterkt verkjalyf, en fremur stuttvirkt, en Phenergan er ógleðistillandi. Var iðulega gefið saman til að verkjastilla og koma í veg fyrir ógleði og uppköst eftir aðgerðir, hér íden.....og kannski enn.
Jamm, ég er seig og læt ekki smá grjótmulning kýla mig niður.
Sigríður Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 13:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.