9.9.2008 | 21:02
Ja, nú er lag á læk!
KLUKK!
Jeminn! Búið að klukka húsfreyju, og hún sem
verður að "panta tíma" í kompjúternum á
heimili sínu.
Djísuss Henný, þetta verður töff.
Jæja, en gott og vel, látum á reyna.
1. Störf sem húsfreyja hefur unnið um ævina:
-Barnapía systra sinna, sem voru 5 árum yngri...
lukkaðist ljómandi vel, og systur báðar heilar á sinni
og líkama enn þann dag í dag.
-Sérlegur "ormaplokkari og úrbeinari" í Meitlinum sáluga,
merkilegu alþjóðlegu frystihúsi í Þorlákshöfn.
-Hjúkrunarfræðingur af Guðs náð á ýmsum sjúkrahúsum
og ýmsum deildum í hartnær 30 ár:
Bogginn-A4-almenn hjúkka- gott að vera.
Gjörgæslan á Landkotisspítala...sá spítali fékk "slag"
og er öldrunarstofnun í dag....en frábær vinnustaður.
Sjúkrahúsið á Húsavík, fékk að vera deildarstjóri í fyrsta sinn,
ljúfur staður, gott fólk.
Sjúkrahúsið í Keflavík-aðstoðardeildarstjóri- frábær staður
yndislegt fólk...var þar í 12 ár.
Heilsugæslan í Hlíðunum-magapína og stress.
Eir, núverandi vinnustaður-aðstoðardeildarstjóri
á blindradeildinni....þvílíkt myljandi skemmtilegt fólk,
bæði samstarfsfólk og skjólstæðingar- en kerfið
þungt, ömurlegt og snúið.
2. Uppáhalds kvikmyndir:
"Casa Blanca"- "Here's looking at you, kid" ódauðlegasta
setning allra tíma.
"One flew over the Cookoo's Nest"- Jack Nicholson bara
snilld.
"The Last of the Mohicans"- gæsahúð alla myndina.
"As Good As It Get'S"- Nicholson aftur í brilliant gír.
"Four Weddings and a Funeral"- Ég er enn að hlæja og
gráta yfir þessari.
"Some like it Hot"- Gömul en þvílík snilld. Jack Lemmon,
Tony Curtis og "Marylin Monroe"!
3. Staðir sem húsfreyja hefur búið á:
-Vestmannaeyjar- fædd og uppalin.
-Þorlákshöfn- úúú svartur sandur- unglingsár.
-Reykjavík- Landspróf, Emm Err og fyrstu árin í hjúkrun.
-Húsavík- Eitt ár.
-Keflavík- 12 ára lærdómsríkt stuð.
-Reykjavík- enn og aftur, í sambúð og að eignast barn,
haldið heimili hér síðustu 12 ár.
4. Staðir sem húsfreyja hefur heimsótt í fríum:
-London- yndislega bretaskipulögð borg.
-Túnis- fornlegt þjóðfélag undir oki sérstakra
trúarbragða...en dásamlegt fólk og vingjarnlegt...
og merkilegt nokk áttu allir 14 tommu litasjónvarp
þar árið 1984...lítið annað.
-Boston- einhver skrítnasta, fallegasta og
óamerískasta borg Ameríku.
-Nice (alias Nissa)- Franska Rivieran er "UPPLIFUN".
-París- að hanga efst uppi í Eiffel turni í 12 metrum á
sekúndu, rigningarskúr og þrumuveðri
er "ógleymanlegt" með lofthræddu fólki....
húsfreyja mælir með því sem "algert must"....
verst að bóndi húsfreyju fer ALDREI framar með
henni þangað upp.
-Heidelberg- Þýskaland í sinni fegurstu mynd...
allt svo gamalt og flott...en samt svo pottþétt.
-Litla Frón- eiginlega sama hvar fæti er drepið
niður...við eigum yndislega fallegt, skrítið og
flott land.
5. Sjónvarpsþættir sem húsfreyju líka vel.
-Út og suður- hvað er íslenskara?
-CSI- elska morðgátur.
-24 hours- þvílík spenna.
-Charmed- hlýt að hafa verið norn í fyrri lífum,
því þetta meikar alllt bullandi sens.
6. Netsíður sem húsfreyja skoðar daglega:
-Mbl.is
-Vísir.is
-Google-allt mögulegt.
7. Matur sem húsfreyju finnst góður:
-Sushi- fíkill.
-Steiktur kjúlli.
-Frónverskt lambakjöt.
-Soðnar kartöflur með salti og smjöri.
- Heitt nýsoðið slátur.
8. Uppáhalds bækur/blöð.
-Tommyknockers-Stephen King
-Harry Potter-J.K. Rowlings
-Historian- Elizabeth Kostova
-Stóra Draumaráðningabókin-Geir Gunnarsson
-Steinn Steinarr-Kvæðasafn og greinar
-Íslenska orðabókin
-Fréttablaðið
-24 stundir.
9. Staðir sem húsfreyja vildi helst vera stödd á núna:
-Nú hún bara er þar, á sínu eigin heimili...með 7 ára
djásnið að horfa á sitt prívat sjónvarp, og bónda að
horfa á sitt.
-Á námskeiði í andlegum málum í klaustri í Tíbet, kemur
einnig til greina....en bara í 3 mánuði eða svo.
-Í sól og blíðu uppi á Blátindi í Vestmannaeyjum að sumarlagi.
-Í grænu grasi í lítilli laut fullri af sóleyjum,
í íslenskri miðnætursól, hvar sem er á Fróni.
10. Bloggarar sem húsfreyja vill klukka:
(Hmmmm.. er ekki búið að klukka alla?)
Sigrún mín (Sigro)...klukk.
Heidihelga vinkona...klukk.
Stína mín (netkella)..klukk
Fjúfff...þetta varð aldeilis pistill.....húsfreyja
hafði bara ekki hugmynd um að hún vissi svona
mikið um sjálfa sig.
Góðar stundir.
Athugasemdir
Flott "klukk" hjá þér...
Kristín Henný Moritz, 9.9.2008 kl. 23:27
næs
halkatla, 10.9.2008 kl. 06:23
alltaf gaman að lesa þig . búin að skrifa "klukkið" mitt.
Sigrún Óskars, 10.9.2008 kl. 22:38
Heheheh Sigga gaman að vita þetta allt um þig upplýsingagleði í hámarki hjá þér Halló þú þurftir nú bara að nefna 4.atriði í hverju...........'Þannig að nú fengum við aldeilis BÓNUS.
þÚ ER ÆÐI.
Solla Guðjóns, 10.9.2008 kl. 23:23
Þakka ykkur ljúfastar. Svona 4 eitthvað ekki að gera sig hjá mér, ekki með mína frásagnargleði
Sigríður Sigurðardóttir, 11.9.2008 kl. 17:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.