6.9.2008 | 20:56
Það að vera lífrænn!
Húsfreyja telur sig vera afskaplega "líffræna"
manneskju og lífveru.
Hún hefur heitt blóð, vaknar "sprelllifandi"
á morgni hverjum, hefur góða hreyfigetu og
þokkalega hreyfitækni, þó ekki taki hún að
sér "handahlaup ala íþróttaálfurinn",
og er með bullandi fínan hjartslátt flesta daga...
.......ef bara ekki ALLA.
Hún þrífst með ágætum í "lífrænum" heimi móður
Jarðar.
Brúkar "lífrænt" súrefni óspart, snöflar í sig
frónversku lambakjöti sem snöflar í sig "lífrænu"
grængrasi, berjum og trjágróðri á fjöllum.
"Lífrænum" kjúllasteikum skellir hún ríkulega í
sig og kjúllar þeir, "fyrir eldun", að sjálfsögðu verið aldir upp
og fitaðir með gæða "lífrænu" fuglafóðri, sérlega
unnið af "lífrænt" þenkjandi fuglabændum.
Húsfreyja jafnvel þekkt af því að hafa "lífrænt"
ræktað grænmeti og ávexti á borðum, sem hún
fyllir maga sinn og annarra með, af og til.
Leyfir hún sér stöku sinnum að tæma bikar af
eðal "lífrænt ræktuðu" rauðvíni, eða litla bjórdós
með innihaldi af "lífrænum toga".
Telur húsfreyja reyndar "nokkuð öruggt", að flest það sem
hún hefur í sínum fórum, hvort sem það eru, lifandi verur
föt, húsgögn eða eitthvað matarkyns, sé ALLT myljandi
"lífrænt"!
Mismunandi hollt mannkyni, kannski...en ALLT svoleiðis
svaðalega "LÍFRÆNT", að það hálfa væri nóg.
Enda hefur mannkyn ekki úr neinu öðru að moða,
en "lífrænum" efnum móður Jarðar, þá því dettur í hug
að "skapa, uppgötva og framleiða".
Móðir Jörð gefur hráefnin, en mannkyn brasar við að
sulla þeim saman á allan mögulegan, og
ómögulegan máta, og útkoman er ekki alltaf góð.
En að þau séu "ólífræn".......svei mér ef húsfreyja,
er nokkuð að fatta þetta orð "ólífrænn"?.
Ja, nema máske í þeim skilningi að eitthvað sé
"steindautt"! TOT! DEAD! MORTE!
En þá brotnar dauði "óskapnaðurinn" mannanna allur,
hvort eð er niður í frumeindir sínar fyrir rest
(sumt á MJÖG löngum tíma", en rotnar samt)
og verður AFTUR "lífrænt" hráefni.
Svo hvaða mál er þetta með að banna að
auglýsa "lífrænt" ræktaðar sígarrettur?
Þær eru jú LÍFRÆNAR, for fa'en!
Tóbaksframleiðendur vilja bara vera "memm"!
Að vera "vistvænn" er hinsvegar allt annar
handleggur.........
Bannað að auglýsa lífrænt ræktaðar" sígarettur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég vissi nú ekki hvar þetta ætlaði að enda ......en lífrænætræktaðar síkó.....ég mein halló.....það má ekki auglýsa tóbak hvort sem er..........
Solla Guðjóns, 8.9.2008 kl. 00:16
Koma frá á tóbaksökrum móður Jarðar, Sollan mín. Svo því ekki lífrænar?
En hitt er annað að hér á litla Fróni má "EKKERT" auglýsa af svona "líkkistunagladóti", og gott ef það er ekki bannað að auglýsa eðalvín og bjór líka....þó auðvelt sé að komast fram hjá slíku, með því að auglýsa BARA léttbjórinn. En auglýsingabann gerir vöruna ekki "ólífræna" í mínum augum.
Sigríður Sigurðardóttir, 9.9.2008 kl. 13:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.