Sól og regn..

birthdaycake-main_Full...á afmælisdegi húsfreyju, þ.e í dagJoyful.

  Og þessi líka yndislega fallegi regnbogi

  beint yfir Grafarvoginum, eins og almættinu

  sjálfu fyndi hjá sér þörf að heiðra konuna með

  litadýrðHalo.  -DÆS-

  Húsfreyja hinsvegar strætóaðist í tilefni dagsins

  með þá stuttu í bíó, naut náttúrufegurðarinnar

  og samverunnar við dótturinaInLove.

  Gerði einnig smá úttekt á "unglingatískunni",

  húsfreyja, því unga fólkið er duglegt að brúka

  þessa tegund farartækja.

  Og niðurstaðan er þessi:

  Íþróttapeysur með hettu eru "inn" og niðurþröngar

  gallabuxur hjá stúlkunum, ásamt "dash" af skjóllitlum

  glimmertoppum og silkitoppumPinch

  Tvö kíló af meiki er "algert must", ef þú ert

  með 4 -8 kíló yfir kjörþyngd, þær grennri láta

  sér nægja púður og varalit.

  Strigaskór í öllum regnboganslitum, þunnar leggings

  með stjörnum og ekkert í stíl hvað við annað litalega séð.

  Erfiðara að höndla tískuna hjá peyjunum.

  Sumir í útvíðum gallabuxum, aðrir niðurþröngum.

  Sumir með brækurnar gyrtar utan um náranaPinch,

  svo rassaskoran blasir við, við minnstu hreyfingu,

  aðrir vel gyrtir, en þá í köflóttum vinnuskyrtum og

  "bleikum" NIKE-strigaskóm.

  Stúlkur áberandi prúðar í samskiptum, en herrarnir

  misjafnir.  Sumir prúðmennskan uppmáluð, á meðan

  aðrir eru angandi af vínanda, og ræða um að

  "hafa verið ósmurðir og þurrir í rassgatinu í dönsku,

  og séu þar með kolfallnir"W00t.

  Húsfreyja hafði ekki hugmynd um að dönskukennarar

  framhaldsskóla væru farnir að gera kröfur um

  "vel smurð og rök rassgöt" á prófum, og þykir henni

  það furðulegar kennsluaðferðir, svo ekki sé meira sagtAngry.

  Þykir henni nokkuð öruggt, að sjálf hefði hún ALDREI

  náð sínu stúdentsprófi í dönsku, hefðu þessar

  "námskröfur" verið við líði á hennar unglingsárumW00t.

  Og ekki nokkur annar nemandi í hennar skóla.

  Værum heil kynslóð "núllistar" í dönskuWhistling.

  En alltaf gaman í strætó......Wizard

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Til hamingju með daginn  ertu nokkuð komin á þann aldur að öll afmæli eru stórafmæli? nei - bara grín

Góð úttekt á unglinga-tískunni, ég er heppin að þurfa ekki að tolla í tískunni  get bara verið í "minni eigin" tísku!

Sigrún Óskars, 30.8.2008 kl. 22:26

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Nah, ennþá réttu megin við fimmtugt, Sigrún.

  Bara lítið afmæli núna, svo ég gerði sem minnst úr því.  En svo verður auðvitað "þjóðhátíð" hjá mer eftir 2 ár.

  Já, mikið hryllilega er gott að vera ekki unglingur lengur, og þurfa að tolla í tískunni....allir í merkjavöru og "ofurmeðvitaðir" um útlitið.

Sigríður Sigurðardóttir, 30.8.2008 kl. 23:05

3 Smámynd: Huld S. Ringsted

Til hamingju með daginn í gær!

Huld S. Ringsted, 31.8.2008 kl. 22:14

4 identicon

Til hamingju með gærdaginn Sigga!

Alltaf gaman að detta hér inn og lesa þín snilldarpistla

Ólína Kristín Jónsdóttir (IP-tala skráð) 31.8.2008 kl. 23:47

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka ykkur elskulegar og góðar kveðjur.

Sigríður Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 16:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband