28.8.2008 | 18:30
Skyldi engan undra...
...eins og málin standa víða um heim, í heilbrigðismálum.
Mesta furða að hinir snjöllu læknar Íra skyldu ekki kippa
úr henni botnlanganum, stækka á henni brjóstin, skella
henni í ristilspeglun og taka úr henni hálskirtlana,
í öllum asanum að meta og veita meðferð, annríkinu með
veikt fólk og svo öllu pappírsflóðinu sem heilbrigðisfólk
þarf að sinna.
Já, helv..., ekkisens pappírsflóðið.
Sjálf var húsfreyja á vakt í morgun, með 26 öldunga
á sinni könnu. Hafði 7 starfsmenn með sér til fulltingis.
Ekki svo mikið um að vera umönnunarlega séð, en nóg
hjúkrunarlega séð.
Tveir öldunganna voru sárlasnir.
Ein elskuleg gömul kona með lugnabólgu, sem húsfreyja
fékk setta á sýklalyf og súrefni og svo gamlingi með
slæma kviðverki og depurð.
Skipta þurfti á 3 sárum, skipta um þvaglegg, skipta á
umbúðum á 3 kviðarholsleggjum, mylja pillur og gefa þær,
gefa lungnapúst og friðarpípur, gefa augndropa,
verkjalyf og sprengitöflur þá kvartað var, sinna
hægðavandamálum, skipta um súrefniskúta,
panta tau, svara símhringingum ættingja, sinna
mönnunarmálum, redda fólki á vaktir næstu 2
daga vegna veikinda, og gera morgunplan.... svo húsfreyja
hafði það bara "þokkalega náðugt" með því að sleppa
bæði morgunmat og hádegismat.
Þeyttist um ganga á 15 kílómetra hraða, og tókst þá að
sinna flestu því er kom upp á.
Átti samt eftir ein sáraskipti og lyfjagjafir eftir hádegi
þegar hún var boðuð á fund....13:15 -15:15.
"LYFJAEYÐUBLAÐAFUND"!
Já, húsfreyja lýgur engu...EYÐUBLAÐAFUND!
Því nú hafa boð borist frá okkar herlega og skarpvitra
heilbrigðisráðuneyti að "skrásetja skuli" allar
pillur á litla Fróni, því eigi sé nóg til af gagnslausum
pappírssnepplum (A-4) í landinu.
(Sjálfsagt sé líka "ónógt skeini" á öllum útisalernum
uppi á litla Fróni samkvæmt nýjustu athugun
ferðamálastjóra, svo nú skal slá margar flugur í einu höggi.)
Lyfjafræðingar sem lítið hafa að gera yfirhöfuð, því
landinn er svo "lítið fyrir" að brúka lyf, fengu fyrsta póst.
Og þar sem "mikið" framboð hefur verið á hjúkkum, síðustu
30 árin, og þær því allt of "margar" að gaufa við að hjúkra
fárveiku fólki á heilbrigðisstofnunum öllum, lá beint við
að blanda þeim í málið.
Því þær sjá jú um, að koma pillum öllum og lyfjum
á "endastöð", það er ofan í maga skjólstæðinga, inn í
vöðva eða blóðrás.
Svo húsfreyja, aðstoðardeildarstjóri og eina hjúkkan
á 26 manna deild, og svo með tilsýn með annarri 24 manna
deild, var boðuð á "hjúkrunarstjórnarfund".
BRAVÓ!
Lyfjafræðingar mættir með eina herlega, græna
"gæðastjórnunarmöppu", á hverja deild.
Gott og vel.
Vel hægt að stauta sig í gegnum eina 50 síðna
gæðastjórnunarmöppu á "kerfistungumáli".
En.....svo fór heldur að þyngjast róður, þegar kom
að "skrásetningu" pilla og lyfja.
Fengum allar "6" grænar möppur í viðbót. Þar í
voru "eyðublöð"!
Ein mappan geymdi eyðublöð fyrir "fyrnd lyf",
önnur fyrir "eftirritunarskyld lyf",
sú þriðja eyðublöð fyrir "lykilskráningu",
sú fjórða eyðublöð fyrir vikulegar "hitamælingar"
í lyfjaísskápum og lyfjaherbergjum,
sú fimmta eyðublöð fyrir "mistök við lyfjagjafir"
og sú síðasta geymdi eyðublöð fyrir "bragðverstu,
og óvinsælustu pillurnar"..........nei, grín, er strax búin
að gleyma hvern djö.... átti að skrá í síðustu möppuna,
húsfreyja.
Etthvað álíka gáfulegt og að "hitamæla" skrattans
pilludótið vikulega.
Sér nú húsfreyja fram á, að hún verði að breyta
starfsheiti sínu, og segja upp störfum sem
aðstoðardeildarstjóri.
Verði nú "grænmöppuritari", "aðstoðareyðublaðaritstjóri"
og "pilluhitamælingamaður" Lyfjaeftirlits Ríkisins!
Sér hún sína sæng útbreidda (..og öxina reidda..) með alla
þessa titla, og vill fara fram á "þrefalda" launahækkun nú.
Og svo "stórriddaraorðu Íslands" við starfslok, fyrir að hafa
"misst framan af" vísifingri og þumli hægri handar af
OFNOTKUN og þrælslegum "eyðublaðaskrifum".
Sér hún fram á að "skjólstæðingum" hennar verði
útdeilt "hamri og stálplötu", þá þeir fara í iðjuþjálfun,
þar sem þeir geta duddað sér við að mylja lyfin
sín í lyfjapokum vikunnar.
Komi svo niður á deild aftur með lyfin mulin í
pokunum, og svo verður "daglegt BINGÓ" í
borðsalnum, þar sem hinum "þremur heppnu"
vinningshöfum, verður hjálpað af hjúkku að taka lyfin
sín þann daginn....þeir sem ekki vinna
verða bara að þrauka pillulausir, og vona að
þeir verði heppnari NÆST.
Sáraskipti og önnur umbúðaskipti fara eingöngu
fram á fimmtudögum, fyrir hádegi á "fullu tungli"
....en bara ef ekki hefur "rignt um nóttina",
annars þeim frestað fram á næsta fimmtudag
á fullu tungli.
Símviðtöl verða BÖNNUÐ, og klippt á allar
símasnúrur deildarinnar, en hægt verður "að
sjálfsögðu", að hafa samband við hjúkkur
skjólstæðinga skriflega með pósti....en er þar
að sjálfsögðu eingöngu átt við "flöskupóst"!
Bráðaveikindum verður að sjálfsögðu öllum sinnt,
AF HJÚKKUM...."í réttri röð" og eftir númerakerfi....
...."þú ert númer 4 í röðinni með hjartabilun"..."en
númer 5 ef þú ert í sykursýkissjokki"...DING!...
...."Mundu að ýta á "1" á bjöllunni, ef þú ert í
hjartastoppi...DING..þá verður þér svarað fyrst!
.......... ......... ............
Í ALVÖRU!!!
Í ALVÖRU!!!
"SEX MÖPPUR FULLAR AF EYÐUBLÖÐUM"!
OG SÚ SJÖUNDA "LEIÐBEININGAR"!!
Húsfreyja er farin að "LEGGJA SIG".
Veitir ekki af.
Með kærri kveðju,
"Grænmöppupilluhitamælingaeyðublaðaritari".
Settu rangan fót stúlku í gifs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Guð hvað þú ert skemmtileg, hló mikið af þessum pistli þínum. Það sem er eiginlega sorglegt - og það er að þetta er allt saman satt
Sigrún Óskars, 28.8.2008 kl. 20:39
Þakka þér; Sigrún mín.
Var í mergjuðum ham, er ég kom heim eftir þennan líka hjúkrunarstjórnarfundinn, og engu logið þar, nema þessu með bragðverstu og óvinsælustu pillurnar. Veit að hjúkrunarforstjóri verður mættur eftir helgi með "helv..... hitamælana", og nú bíðum við hjúkkur bara spenntar eftir að "salernisferðir" hjúkka og samstarfsfólks verði settar undir "gæðastjórn". Að sjálfsögðu 3 eyðublöð þar með, fyrir "gular" ferðir, "brúnar" ferðir og "fyrningu, eyðingu og losun hægðalyfja". Mamma mía.
Þvílíkt myljandi grín...og dapurleg stjórnun heilbrigðismála.
Sigríður Sigurðardóttir, 28.8.2008 kl. 21:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.