Róið á brókinni...

R-...á eðal breskan hátt.

  Þetta myndband er bara snilld og fullt af myljandi

  góðum húmorTounge.

  Húsfreyja sér fyrir sér stórsigur breska róðraliðsins,

  þar sem ræðarar allir í öðrum liðum, verða grútmáttlausir

  og veinandi af hlátri yfir múnderingu bretannaLoL.

  Annars asskoti góðar brækur, Boratbrækurnar.

  Etthvað svo líflegar á litinn, og sýna vissar útlínur svo velWhistling.

  En heldur er líklegt að frónverskum körlum þyki brækur

  þessar skjóllitlar, og skammgóður vermir í þeim á

  köldum vetrarmorgnum...og fer þá heldur að draga

  úr "fegurð línanna" þegar karlmannleg líffæri taka

  að "skreppa saman" af kuldaPinch.

  Þá betra að hafa gamla góða föðurlandið við

  hendina, til að skerpa blóðflæði, hugsun og vitGrin.

  Góðar stundir.


mbl.is Breskur afreksmaður á brókinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Mér sýnist þessi karlmannlegu líffæri þurfi að vera helst til of lítil fyrir þessa brók.

Sigrún Óskars, 21.8.2008 kl. 19:45

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Þú segir nokkuð.....máske "sérútbúnaður" fyrir lítt niðurvaxna herramenn?

Sigríður Sigurðardóttir, 22.8.2008 kl. 11:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband