19.8.2008 | 21:49
Sjónvarpsstríðið.
Á heimili húsfreyju geisar nú stríð.
Eftir að "hinn eini sanni Latibær" íþróttaálfsins
flutti á Stöð 2, upphófust mikla umræður á
heimilinu.
Þeirri stuttu var mikið niðri fyrir..."oooooooooooo",
..."oooooooooo"....."oooo...get ég þá ALDREI horft á
Latabæ aftur..ooooooooo..."!
Bóndinn á bænum var óvenju jákvæður að fá stöðina,
...meira af íþróttum og "Dagvaktin" heillar.
Húsfreyju var nokk sama, enda hefur hún ekki horft á
sjónvarp af neinu ráði síðustu 12 árin, og gerir sér
engar grillur um að horfa á það næstu 10 árin....eða
20.....eða whatever.
Svo auðvitað var húsfreyja sett í það að versla inn
"Latarbæjarstöðina", á sínu Visa-korti.
Afruglari sóttur, og ruglið hófst fyrir alvöru.
Örbylgjuloftnet úti...fá mann til að tengja.....18 þúsund
kall.
Einhver helv.... haugur af "frístöðvum ásamt 2+, og bíó
fylgdi.
Nú er minn maður takkaóður "flikkflakkari" á fjarstýringum,
sem flikkar á milli stöðva á 2 mínúta fresti, svo hann nái
áreiðanlega, pottþétt og örugglega
"1/10" af ÖLLUM dagskrárliðum, en sú stutta vill horfa á
barnaefni, MEIRA barnaefni og ENN MEIRA BARNAEFNI...
..."í FRIÐI, PABBI"!!
Svo nú er RIFIST á heimili húsfreyju um sjónvarpið, og
ÞRASAÐ og KARPAÐ.
Húsfreyja er hinsvegar orðin bísna flink að gaufast í kapli í
kompjúternum, lætur "Spider 4 sortir" ganga upp í 3 hvert skipti.
Og enn stefnir allt í ófremdarástand, enn og aftur.
Gamli imbinn orðinn lélegur...líklega að bræða úr sér á
öllu flikkflakkinu, svo bóndi vill nýjan...flatskjá 34-44 tomma...
190 þúsund kall á Visa-rað húsfreyju, og sú stutta
þarf sitt eigið með innbyggðum DVD, svo hún geti haft
sitt barnanefni í friði.
Visakort húsfreyju er eitthvað orðið "bráðið" á börmum,
líkt og það hafi lent í síðasta Heklugosi, og við henni gín
hrikalegur gígur blankheitanna næstu mánuði.
Hmmmmm....! Ætli að hægt sé að keppa til fjár í
Spiderkaplalögnum?
Húsfreyja myndi "rústa" slíkri keppni.
Athugasemdir
Bóndinn á bænum hefur kíkt í launaumslag húsfreyju og séð alla kauphækkunina sem við fengum
Sigrún Óskars, 20.8.2008 kl. 14:08
Aha, gæti trúað því, Sigrún. ALLA launahækkunina.
Sigríður Sigurðardóttir, 21.8.2008 kl. 11:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.