Vandræðagangur og....

....dautt internet verið að hrjá kompjúter húsfreyju.

  Voru ekki litlu skvísurnar sem myrtu kompjúterinn, líkt og bóndi hélt.

  Heldur hann sjálfur sem hafði verið að hringla á milli símafyrirtækja,

  og allt fór í tjón og tjöruAngry.

  Og ekkert bólar á bévítans netinu ennErrm.

  Sér húsfreyja að hún verði að fara í "netaútgerð" með þessu

  áframhaldi.

  Skyldu "net þau er fisk fanga", gagnast í kompjútera líka?? 

  En fiskinet eru einu netin sem húsfreyja kann að "setja upp",

  og er með allt á hælunum hvað tölvunet varðarPinchWhistling!

  Ætlar húsfreyja rétt að vona, að bóndi hennar hætti að láta

  ginnast af gylliboðum símafyrirtækja, sem eru svo of upptekin

  til að sinna kúnnunum, og að hún fái að hafa sitt "internet" og

  blogg í friði í sumar.

  En fyrst er að fá netið inn aftur...og það getur tekið tímaWhistling.

  Svo húsfreyja læðir inn litlum pistlum hér og þar í lánstölvum,

  en getur lítið heimsótt bloggviniCrying.

  En stendur vonandi allt til bóta.......

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

Nú vorkenni ég kompjúter húsfreyju. Gæti illa verið án tengingar við veraldarvefinn.

Sigrún Óskars, 22.6.2008 kl. 22:53

2 Smámynd: Solla Guðjóns

Sigga!!!! aldrei að láta kallinn ráða

Solla Guðjóns, 23.6.2008 kl. 10:25

3 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

nei látu kallinn aldrei komast upp með að ráða það er alveg tóm tjara. Vonandi er enginn bangsi á Hvammstanga nema Bangsi, a.m.k. vona ég það, er á leð norður á fimmtudag ( ef ég tími að kaupa helv.... bensínið)

Guðrún Jóhannesdóttir, 23.6.2008 kl. 20:49

4 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Jamm, illt þegar karlpeningurinn situr við stjórn í síma-og tölvumálum, og allt fer í bál og brand, og ekkert bólar á netinu enn.

  En þakka innlitin ljúfastar.

  Og góða ferð norður Guðrún.  Engan hitti ég bangsann, ekki einu sinni Bangsa.

  Bévítans ekkisens bensínið*#+&#....ekki láta mig komast í að hugsa um það!

Sigríður Sigurðardóttir, 24.6.2008 kl. 12:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband