15.6.2008 | 13:37
Skrítið athæfi atarna.
En jafnvel enn furðulegra, að maður þessi skuli fá 14 ára fangelsisdóm fyrir,
auk 18 vandarhagga!
Og hann er dæmdur á þeim forsendum, að "líklegt þótti" að hann héldi áfram
um ókomna tíð, að hnusa af handarkrikum kvenna og snerta.
Á að vísu sögu að baki, um kynferðisglæpi og eiturlyfjaneyslu,
en samt....er ekki verið að dæma hann fyrir slíka glæpi hér.
Ósköp eru konur þá í Singapúr "viðkvæmar" gagnvart handakrikum sínum,
eða hvað?
Eða eru það bara dómarar þeirra í Singapúr?
Eru þá kannski "anti-handakrikadómstólar" þessir í rífandi buissness þarna
í Singapúr? Menn dæmdir tvist og bast í 14 ára fangelsi fyrir það eitt,
að "draga djúpt að sér andann" í návist "handarkrika" kvenna?
Og flengdir líka, ekki má gleyma því!
Sér þá húsfreyja fyrir sér, að herramenn Singapúrs, verði að fara að halda
í sér andanum, þá þeir ferðast í lestum, strætó, lyftum og þar sem margar
konu eru samankomnar.
Næsta víst að "bláleitir" karlmenn verði á hverju götuhorni Singapúrs innan
tíðar, og "andateppa" verði tískusjúkdómur aldarinnar í þeirri borg.
Jamm, margt er skrítið í kýrhausnum.
Stóra handarkrikamálið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ERu handarkrikar nú orðnir stórir ....æj ég er að bulla ......deyja úr þreytu og með svefngalsa og langar að dansa......salsa
Solla Guðjóns, 15.6.2008 kl. 22:58
Bara svona smákveðja til hjúkkunnar minnar
Heiður Helgadóttir, 16.6.2008 kl. 17:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.