Draumabifreið....

cfooderof2....húsfreyju, er einmitt bíll sem hún dælir bara vatni á, í stað bensísJoyful

  Sér svo vélvirki bílsins um að umbreyta vatninu í vetni, og málið er dauttCool.

  Ekkert bensíngutl á uppsprengdu verði, dýrara en tanntaka hjá tannsa,

  eða steinolía sem kostar á við meðalstóran demant, ein áfyllingAngry.

  Vill húsfreyja að Frónbúar sérhæfi sig í "bílakaupum", og versli eingöngu

  "vatnsbílana", nú eða framleiði sjálfir.

  Því nóg er af vatni hér í voru litla landi, og heldur er "vötnum" alltaf að

  fjölga, í formi uppistöðulóna upp um allt vort hálendiGetLost.

  Gætum jafnvel orðið næstu "orkumógúlar" heims, ef "vatnsbílarnir" ná

  vinsældum um veröld alla.

  Seljum ríkari þjóðunum "blávatn" á hóglega háu verði, en fátækari

  þjóðum fyrir slikk...eða gefum þeim bara slatta af vatnstonnum á ári hverjuHalo.

  Bara gæta okkur á óprúttnum smyglurum og erkibófum, sem sjá sér akk í því,

  að skreppa upp að Gullfossi eða Skógarfossi með fötur, potta og kyrnur.

  Til þess eins að ræna okkur "gullinu" dýra, og smygla úr landi í plastbrúsum,

  til þess eins, að selja bílaeigendum á svörtum erlendis.

  Verður það þá ekki lengur dóp eða spíri, sem flýtur umvörpum í sjónum,

  í kringum farskip og veiðiskip í utanlandsferðum!

  Sei, sei, NEI!

  Blávatn í massavís!

  Setjum Björn Bjarnasson í málið, og látum hann stofna S.B.L.!

  Þ.e. "Sérsveit Blávatnaliða"Devil.

  Jamm, þá færi nú fyrst að verða eitthvað fútt í þessu hjá BirniLoL.


mbl.is Bíll sem gengur fyrir vatni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband