KARLmannlegt þjóðvarðarlið?

Swiss_Guard_Line-up  Engir mjálmandi aukvisar með bólugrafna húð, sem fá inni í spánska þjóðvarðarliðinuHalo.

  Sei, sei, nei.

  Þýðir ekkert að sækja um ef þú stamar.

  Ert sykursjúkur.

  Með mígreni.

  Eða hefur nælt þér í klamidíu eða sárasótt.

  Ör og lýti í andliti ekki vel séð.

  Og auðvitað alveg "hrikalegt" ef þú hefur aðeins eitt eistaPinch.

  Eða ert myljandi fínn tenór með röddina á háu nótunum.

  Nú fyrst að spánverjarnir eru búnir að setja svona haug af reglum,

  finnst húsfreyju sjálfsagt að þeir bæti við:

  Hjartveikir út, gætu hreinlega fengið slag við smá álag.

  Feimnir, þora aldrei að yrða á nokkurn mann.

  Lugnaveikir út með alla sína kvefsýkla og astmaskít.

  Árásargjarnir, plöffuðu niður hvern þann sem vogaði sér að hnerra í

  áttina að þeimW00t.

  Karlar með tíðar þvagfærasýkingar og eilíft ról á salernið út.

  Brosmildir, aldrei öruggt hvenær þeir eru bara að grínast.

  Hægðatregðukarlar út, ekki smart að vera "stoppaður upp í háls"!

  Fótafúnir, innskeifir jafnt sem útskeifir út, komast vart úr sporinu.

  Geri þeir spænsku þetta, og stoppi í öll möguleg og ómöguleg "heilsufarsgöt",

  þá er næsta víst að ENGINN spánverji yfir 10 ára aldri kemst í þjóðvarðarliðið

  þeirraDevil.

  Er þá eins gott að leggja þjóðvarðalið þetta niður, og eyða peningunum,

  sem fóru árlega í að reka herlegheitin, frekar í rannsóknir á því,

  hví sumir spænskir karlar hafi "skrækar" raddir, fái ekkisens mígreni, stami,

  verði sykursjúkir, smitist illilega af kynsjúkdómum, séu öróttir í andliti,

  þjáist af sóríasis og séu stundum "eineista"LoL!

  Jamm, bara svona létt geggjuð pæling, hjá húsfreyjuGrin

 


mbl.is Skrækróma menn mega ekki verða þjóðvarðliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

mjög góð pæling þetta

halkatla, 4.6.2008 kl. 20:13

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Takk Anna fyrir það, og til hamingju með nýju síðuna.  Kíki reglulega á þig þar.

Sigríður Sigurðardóttir, 4.6.2008 kl. 20:29

3 Smámynd: Sigrún Óskars

skemmtilegar pælingar

Sigrún Óskars, 4.6.2008 kl. 22:40

4 Smámynd: Solla Guðjóns

Sigga hef ég sagt þér að þú ert miljón

Solla Guðjóns, 5.6.2008 kl. 01:28

5 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Þakka ykkur, ljúfastar

Sigríður Sigurðardóttir, 5.6.2008 kl. 10:16

6 Smámynd: Kristín Henný Moritz

Ég var að frétta að þú værir með pest... ekki koma í heimsókn! En láttu þér batna! Bið að heilsa.

Kristín Henný Moritz, 7.6.2008 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband