28.1.2008 | 17:19
Þeir fá hann aldrei aftur...
....þennan
! Settist eitt sinn í svona nuddgræju, á mikilli húsgagnasýningu, og karlinn minn varð að "múta" mér til að standa upp úr dýrðinni aftur
! Þá vildi ég taka happagripinn með heim, en minn maður benti mér náðarsamlega á það, að þá þyrftum við að "endurfjármagna" upp á nýtt, eða flytja í ódýrara húsnæði öðrum kosti.
Lýst eftir nuddstól | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hummmm og ertu kannski kominn með svona stól núna haha
Bjarni (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 17:31
Hahahahaha, heldurðu að ég gefi það upp?
Nei, bara smá grín! Á "því miður" ekki svona græju. En hann er á jólagjafaóskalistanum mínum....ár eftir ár
Sigríður Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 17:56
Hehe þekki þetta, prófaði örugglega mun slakari stól en þetta, en var samt alveg ekkert að fara frá honum hehe
Bjarni (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 18:42
Já, og ég ætla rétt að vona að "nuddhægindastólar" verði "jólagjöfin í ár"! GPS....iss bara piss!
Sigríður Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 19:16
Svoleiðis stól gæti ég hugsað mér, hvar er hægt að kaupa þá í Ikea!
Heiður Helgadóttir, 28.1.2008 kl. 19:58
Oooo, ég vildi óska þess, Heidi. Hef því miður ekki séð þá í IKEA! Sjálfsagt bara til í rándýrum húsgagnaverslunum. DÆS!
Sigríður Sigurðardóttir, 28.1.2008 kl. 20:05
Það er einn félagi í vinnunni sem er svolítið veruleikafyrrtur. Félaginn er í hjólastól og getur lítið gengið, svo er eitthvað vesen með hendurnar á honum, eitthvað í taugunum, svo þér eru alltaf fastar í sömu stellingunni. Núna er hann búinn að vera að bíða eftir að bílprófið hans verði endurnýjað svo hann geti farið að keyra um og svonna. Það nýjasta hjá félaganum er svona nuddstóll og samkvæmt honum er það alveg nauðsynlegt að eiga eitt svona stykki. Þegar hann var spurður um hvernig ætti að fjámagna kaupin sagðist hann bara ætla að selja íbúðina sína.... ekkert mál!
Kristín Henný Moritz, 28.1.2008 kl. 23:09
Ég fór nú að brosa þegar ég sá þessa frétt......gerði mér ekki grein fyrir verðmætinu.... en.... tilgangurinn???
Solla Guðjóns, 29.1.2008 kl. 04:56
Vilja sjálfsagt fá aftur dúndur notalegt nuddið á herðar og bak, eigendurnir! Mikið skil ég þá, Sollan mín.
Henný mín, ég veit ekki hvort félaginn gerir sér grein fyrir því, að þó stólar þessir séu himnasending fyrir auma vöðva í baki , herðum og hálsi, þá eru þeir ekki útbúnir salerni, eldunargræjum né heldur "þaki"! Gæti farið að harðna á dalnum hjá félaga, þegar vetrarhríðin geysar, hann er sársvangur og alveg í spreng.....og hann búinnn að selja íbúðina ofan af sér!
Sigríður Sigurðardóttir, 29.1.2008 kl. 21:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.