Amma gamla var erfið...

...en á haugana hefði hún samt ALDREI farið!  En ég vinn sjálf í öldrunargeiranum, og er víða misboðið hvernig farið er með aldrað fólk og fjármuni þess.  Þetta yndislega gamla fólk okkar, á allt gott skilið.  Er hafsjór af fróðleik, sögum og upplifunum.  Og merkilegt nokk: MYLJANDI HÚMORSmile!  Þvílíkt æðruleysi og lífsgleði ásamt húmor hef ég sjaldan kynnst í jafn miklu mæli og á mínum vinnustað.  Og ef ég hefði upp á bestu mögulegu þjónustu að bjóða ALLTAF, þá væri mun meiri tími til að setjast niður og spjalla við gamla fólkið mitt, og eiga með því góðar stundir.  Í stað þess að vera á harðahlaupum, endalaust, bara til að tryggja að grunnþörfunum sé sinnt!  Á þessu hafa stjórnvöld hér uppi á litla Fróni lítinn skilning, og bara "allt í lagi" að reka öldrunarheimili með "lágmarksmönnun", þar sem annar hver starfsmaður skilur lítt íslensku, eða getur lítið talað hanaW00t.  Og ekki lítur þetta vel út með framtíðina.  Á mínum svartsýnustu stundum, sé ég fyrir mér að vera boðið, háaldraðri kerlingunni, í ferð til TIMBUKTÚ......aðra leiðina.  Verð látin mæta niður á höfn í hjólastólnum, ásamt öðrum gamlingjum.  Farkosturinn verður risastór "prammi" með "einni ár"!  Við síðan dregin af Lóðsinum út á rúmsjó, og sagt "vesgú" góða ferð til TimbuktúCrying!!

  Amma gamla í Indlandi á alla mína samúð, en ekki er einu sinni víst að nógu mörg þokkaleg öldrunarheimili, hafi verið reist fyrir gamla fólkið í því þjóðfélaginu.  Og næsta víst að biðlistar inn á þau heimili, er til staðar eru, séu 200 kílómetra langir!


mbl.is Ömmu hent á haugana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Huld S. Ringsted

já það er alltof lítil virðing borin fyrir gamla fólkinu í dag, einhvern veginn hafa foreldrar gleymt því síðustu árin að kenna börnum sínum að ef gamla fólkið væri ekki þá værum við einfaldlega ekki til, ég bloggaðu um þetta í gær: Virðingarleysi

Huld S. Ringsted, 19.7.2007 kl. 13:34

2 identicon

það er rétt að þörf er á meiri virðingu fyrir öllum góðu og gömlu ömmunum hvar sem í heimi þær eru..

Hér er aftur á móti fjallað um þær í léttum stíl:

http://blog.central.is/sir-magister/index.php?page=viewPage&id=1424691

Kári Elíson (IP-tala skráð) 19.7.2007 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband