18.7.2007 | 22:10
Enn af skopmyndum.
Heldur finnast mér fangelsisdómar þessara manna hafa verið harðir. Eru orð sögð í hita og heift, ( og af kannski ekki merkilegu tilefni( skopteikningum)), en eigi að síður verður ekki séð, hvort þeir hefðu látið verkin tala í kjölfarið. Hefði átt að taka tillit til þess í dómunum. Verður samt að hafa í huga það sem á undan er gengið í Bretlandi, og að bretar telja menn þessa og orð þeirra hættuleg samborgurunum. Tel ég að það sé "heiftin" og blóðþorstinn í orðum sakborninga, sem vegur þyngst, þegar þeir voru dæmdir. Og þar stendur ef til vill hnífurinn í kúnni. Þessi yfirgengilega og óskiljanlega heift, þegar heittrúuðum islömum finnst á sig og trú sína hallað. Vekur upp ótta og skelfingu hjá flestum er á horfa og heyra. Vilja að trúarbrögðum þeirra sé sýnd virðing, sei sei jú. Skil það vel, og gott mál að Baunarnir báðust afsökunar á skopinu. En þeir virðast ekki skilja að heiftin og blóðþorstinn í orðum þeirra, vekur hvorki upp virðingu né aðdáun. Aðeins ótta, skelfingu og viðbjóð yfir talsmátanum. Þeir ættu að biðjast afsökunar á sínum orðum, alveg eins og Baunarnir á skopinu. Slyppu þá kannski við að sitja í fangelsi árum saman.
Fjórir dæmdir í fangelsi vegna skopmyndamótmæla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.