10.11.2012 | 19:34
Vér fjármálavitleysingjar ...
...og pólitískir "halanegrar" hér uppi á Litla Fróni,
sem treystu og trúðu árum saman á flokk
einn pólitískan sem kenndi sig við sjálfstæði,
megum nú bíta í það súra epli, að hafa skitið upp á
bak og treyst kolvitlausum flokki til að stjórna oss....
ÁRUM SAMAN.
Vér armir rugludallar í pólitík, trúðum í blindni á, að flokkur
sjálfstæðis myndi leiða oss kreppta og óðaverðbólguþjáða
fram til jöfnuðar, velferðar, frelsis og sjálfstæðis.
VÁV! Vorum við arfaheimskir og auðtrúa.
Uppskárum bankahrun, djúpa kreppu og aðför að velferðarþjóðfélaginu.
Fimmföldun, lágmark á skuldum okkar, minni kaupmátt,
hækkað vöruverð, hrikalegan niðurskurð í heilbrigðis- og menntamálum.
Öldungar gerðir að "annars flokks" þegnum.... öryrkjar og fatlaðir
"skornir niður", vegagerð skorin niður osfr. osfr.
Og flokkur sjálfstæðis... jamm flokkur sjálfstæðis, hvað gerði hann?
GUÐ BLESSI ÍSLAND!...var eitt.
(Flestir vita að Guð hjálpar þeim sem hjálpa sér sjálfir.)
Gerðu "alltaf-að-vara-við-hruni-þegar-hann-var-ekki-að-lofa- sterka-
stöðu-frónverskra-banka" SEÐLABANKASTJÓRA að ritstjóra yfir
helsta málgagni sínu, var annað.
Og í þriðja lagi...... í þriðja lagi...öööö......?
Húsfreyju dettur bara ekkert "hið þriðja" í hug.
Núverandi ríkisstjórn tók við VERSTA búi allra tíma,
þegar hún settist á valdastóla.
Lífróður verið róinn fyrir vora frónversku þjóð...sumt vel gert...
annað miður....og sumt ekki einu sinni komist til framkvæmda.
Samt er þessi ríkisstjórn heilagrar Jóhönnu Sig.,
stödd á toppi Everestfjalls í hennar huga,
hvað dugnað og vinnu fyrir "þjóðina" varðar,
á meðan fráfarandi ríkisstjórnir sjálfsæðismanna, lafa á gömlu morknu
akkeri úr skipsskaða, út í Faxaflóa þar sem hann er DÝPSTUR.
Segi Villi hinn skarpi framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins,
að litla Frón sé orðið nyrsta Afríkuríkið, er það sjálfsagt hárrétt hjá honum.
Hann ætti að vita það.
Sjálfstæðisflokkurinn kom okkur í þessa eðal stöðu.
Svo mörg voru þau orð.
Góðar stundir og munið að brýna spjót ykkar fyrir næsta
Afríkuríkjafund.
Segir Ísland nyrsta Afríkuríkið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Stjórnmál og samfélag | Aukaflokkur: Spaugilegt | Breytt 22.11.2012 kl. 14:54 | Facebook
Athugasemdir
Sæl,
var að lesa gamla færslu frá þér um maga mígreni dóttur þinnar, mætti ég senda þér nokkrar spurningar ?
Vinsamlegast svaraðu þá með því að senda mér tölvupóst á uppgefið netfang :)
kv. Inga
Inga (IP-tala skráð) 11.11.2012 kl. 19:28
Sæl Inga vil gjarnan svara þér en mikill rati á tölvu. Hvar finn ég netfang þitt? Eða viltu nota mitt?
Sigríður Sigurðardóttir, 16.11.2012 kl. 22:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.