3.10.2011 | 20:02
Tunnubarningur.
Húsfreyja er mun hrifnari af tunnubarningi
en eggjagrýtingu, þá mótmæla skal af krafti.
Telur illa farið með góðan mat, þegar eggjum
er kastað í höfuð á fólki, fyrir utan að fólk með
viðkvæmt höfuð getur lent í stórtjóni og skaða,
fái það egg í hausinn "á slæman stað".
(Mænuskaða jafnvel, sagði í fréttum kvöldsins í sjónvarpinu.)
Húsfreyja á ekki heimanaðgengt í kvöld, en óskar
mótmælendum velgengis í kvöld og góðs tunnubarnings.
Góðar stundir.
Fjölgar á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 20:04 | Facebook
Athugasemdir
Já vonandi gengur vel að koma einhverri lélegustu ríkisstjórn frá upphafi lýðveldisins frá. Einnig vona ég að þessi aumu fjölmiðlar sem eru í landinu skoði hvað það er sem fólk hefur að segja og komi því á framfæri. Ekki eins og á laugardaginn þegar eingöngu var sagt frá eggjakastinu, talað við lögregluna og þess háttar. Engin umfjöllunum tónleikana eða þá uppákomu sem var á Austurvelli. Varla minnst á ræðu búta þeirra sem voru á mælendaskrá. Hafi fjölmiðlar allir skömm fyrir. Gs.
Guðlaugur (IP-tala skráð) 3.10.2011 kl. 20:16
Já, þeir fjalla um það sem þeim þykir æsilegast hverju sinni, Guðlaugur, fjölmiðlarnir. Skítt með hitt, því miður. En landinn gefst ekki upp! Svo áfram með tunnubarninginn. Þakka þér kærlega kommentið og innlitið.
Sigríður Sigurðardóttir, 5.10.2011 kl. 20:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.