14.6.2011 | 19:32
Tryllingslega, Reglulegt og Pínlegt Mígrenis-...
...gen númer átta þá að hrjá
konur margar og stúlkur í ætt húsfreyju.
Það er ekki nokkur spurning.
TRPM8 erfðavísir þessi gengur þá ljósum
logum tvist og bast í bæði móður- og föðurætt
10 ára djásnsins, og jafnvel fleiri hroðaleg mígrenisgen
á ferli þar einnig.
Báðar ömmur hennar eru mígrenissjúklingar,
faðirinn var mígrenissjúklingur fram yfir tvítugt
og gott ef ekki móar í minningu hjá húsfreyju um mergjuð
magakveisuköst um 4-5 ára aldurinn.
Jamm, leiðinda sjúkdómur, mígreni, erfiður og truflar mikið
daglegt líf.
Tíu ára djásnið greindist með magamígreni
fyrir rúmu ári síðan, en nær 10% allra skólabarna
fá mígreni, með eða án magaverkja og uppkasta,
og svo fá örfá þeirra "eingöngu" magaverkinn og
uppköstin.
Húsfreyja hélt fyrir rúmu ári síðan, að líklega væri hún
einhver móðursjúkasta móðir allra tíma.
Búin að ímynda sér alla mögulega og ómögulega
meltingarfærasjúkdóma sem gætu verið að hrjá
hennar ljúfu dóttur, og var að trompast yfir
öllum veikindadögum djásnsins, skólatapi hennar,
og vinnutapi foreldra.
Þá gaukaði einn ágætur læknir á vinnustað hennar að henni,
að börn gætu fengið mígreni "eingöngu" í maga.
Húsfreyja fauk á methraða með djásnið til barnalæknis,
og mikið rétt, djásnið reyndist með bullandi mígreni,
og svaraði strax lyfjameðferð og breyttu mataræði.
Hefur síðan vart misst dag úr skóla, og hefur
sloppið að mestu við köst, nema eitt og eitt með
margra mánaða millibili.
Köst 10 ára djásnsins byrja ætíð eins:
1. Lystarleysi og hitatilfinning í maga.
2. Sviðaverkur sem kemur í bylgjum.
3. Ofsafenginn krampakenndur verkur, ógleði og uppköst.
Þetta ástand varir í 3- 6 klst ómeðhöndlað, en þá
er kastið gengið yfir.
Yfirleitt nær húsfreyja að grípa strax inn í kastið
á stigi 1. og 2. með verkjalyfjagjöf (Panodil/ Paratabs),
en nái hún því ekki er hún búinn að missa tökin á málinu,
stig 3. verður óumflyjanlegt,
og kastið verður að renna sitt skeið með tilheyrandi
ofsaverk, ælum og gráti.
Já, það er oft vandlifað með arfleið fyrri kynslóða,
en það góða er að nú á dögum er mun meiri hjálp að fá.
Djásnið tekur 3 litlar töflur eftir kvöldmat alla daga,
forðast unninn mat, pylsur, bjúgu o.þ.h., forðast sætmeti
og sætindi (nema á laugardögum) og kakó sömuleiðis, og
hefur það ljómandi gott flesta ef ekki alla daga.
Húsfreyja man þá daga á sínu bernskuheimili,
þegar föðurafi hennar, Guðmundur Eyjólfsson,
stóð vörð um almyrkvað svefnhebergi
foreldra hennar, þaðan sem henni
og systrum hennar bárust til eyrna uppsöluhljóð,
kveinstafir og grátur móður þeirra.
"Mamma ykkar er veik, þið farið ekki þarna inn
nema með opna slagæð, opið handleggsbrot
eða þá að þið hafið asnast til að kveikja í kjallaranum"!
Afinn ekkert að skafa af hlutunum, og gaf hvergi eftir
áköfum köllum systranna eftir athygli mömmu.
Árið 1969 var fátt um góða drætti þegar kom að
meðferð við mígreni.
Svo móðir húsfreyju þjáðist, stundum 2-3 daga í röð,
höfuðið að springa, sjóntruflanir, uppsölur.
Afi stóð vörð.
Upp úr 1970 kom nýtt lyf á markaðinn, Norgesic.
Móður húsfreyju snarbatnaði mígrenið, köstum fækkaði
smátt og smátt og eru nú orðin fjarlægur ómur af leiðindum í
minningum móður húsfreyju.
Húsfreyja slapp að mestu sjálf.
En ekki 10 ára djásnið.
Kannski hennar lán, að eiga móðusjúkustu móður allra tíma,
sem sífellt leitaði orsaka og lausna.
Kvartaði og kveinaði fyrir hennar hönd,
las, gúgglaði, hringdi, leitaði ráða og gafst ekki upp.
Það er einlæg ósk húsfreyju að öll börn með mígreni,
með eða án magaverks, eigi hrikalega móðursjúkar mæður....
eða jafnvel betra,....."föðursjúka" feður!
Góðar stundir á sumarlegu kveldi.
Erfðavísar mígrenis fundnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 19:35 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.