Það haustar snemma..

  447328... hér norðan heiða í ár" hugsaði húsfreyja

  rasandi, er hún horfði á gula móana fyrir

  ofan kirkjuna á Hvammstanga, og hávaxin

  lauflaus trén í kringPinch.

  Blómabeð tengdamúttu hennar voru vart

  svipur hjá sjón, búið að breiða svarta dulu

  yfir bóndarósina og Páskaliljurnar voru fölar

  og ræfilslegar, lafandi með hor og hóstakjöltur

  í norðangarranumSick.

  "Asskoti er að vita þetta" hugsaði húsfreyja,

  "og enn verra að berja augum"!

  Það næddi ónotalega jökulköldum vindi ofan í

  hálsmál húsfreyju, og hún gjóaði kuldarökum augum

  upp á snjóhvítan tind Þrælsfells í sólskininu, þar sem

  "Vetur konungur" sat á hækjum sér og glotti kalt og grimmdarlegaGetLost.

  Ekkert fararsnið á honum karldruslunni, og komið fram í

  miðjan júní.

  Húsfreyja sendi honum pirraða fyrirspurn:

  "Ferðu ekki að snáfa af landi brott, herra minn?

  Hér á að vera komið sól og sumar fyrir löngu, og svo

  bara blæst þú vorgyðjunni út á hafsauga og reynir

  að frysta í okkur blóðið langt fram í júní"!

  Karl hló hjartanlega af húsfreyju, en svaraði engu, andaði síðan

  snarpri ískaldri vingusu beint í andlit hennar svo

  tárin streymdu niður kinnar hennar í næðingnumPinch.

  Sú gula hafði látið svo lítið að sýna sig þrátt fyrir

  lætin í karlfjandanum, en mátti sín lítils fyrir

  ofurmætti hans og kuldalegri þrjósku.

  Tarna var ljóta sumarið.

  Húsfreyja hætti snarlega við að fara í göngutúr...ekkert vit

  í að drepast úr lugnabólgu um hásumarW00t.

  Það yrði  bara hlegið að henni í "Sumarlandinu" þegar

  hún mætti þangað með vottorð upp á banamein:

  STEINDÓ AF LUGNABÓLGU Í "JÚNÍ"Devil!!

  Neipp, þá var betra að dúða sig  í hlý vetrarföt,

  skella sér inn í bifreið og fara í smá rúnt um bæinn....

  með miðstöðina stillta á hæstu stillingu.

  Húsfreyja flýði inn í hús aftur, en þar var þegar búið að

  ákveða ferð "í bíl" út á Vatnsnes í eðal fiskisúpu

  á Geitafelli, á meðan úrillur kötturinn vafði sig inn í

  ullarteppi uppi á lofti.

  Þetta lagðist bísna vel í húsfreyju, en hún ullaði samt

  framan í "Vetur konung" á leiðinni út á nesiðTounge,

  svona til að hefna sín fyrir ískaldar vindkviðurnar.

  Á Geitafelli var vel og hlýlega tekið á móti svöngum

  ferðalöngum.  Fallegur hlaðinn turn á hlaðinu,

  og snyrtilegur og fallegur veitingasalur.

  Tengdapabbi hafði búið á Geitafelli til 6 ára aldurs.

  Spjallaði við bóndakonuna og eðalkokkinn á staðnum.

  Fiskisúpan rann ljúflega niður, nema hjá 10 ára djásninu,

  sem er á "ekkert DRASL má vera í súpum"-tímabilinuWhistling.

  Bóndakona leyfði að við litum inn í turninn.

  Þar gamlir íslenskir munir frá fyrri hluta síðustu aldar,

  og jafnvel eldri, gamlar ljósmyndir og fleira.

  Uppi annað turnherbergi með skoskum munum, bréfum,

  fánum og fleira, til heiðurs skoskum heiðursmanni,

  séra Robert Jack.

  Þar las húsfreyja þessu skemmtilegu frásögn:

  Guð almáttugur var að skipuleggja

  sköpun Skotlands, og ræddi málið

  við Gabríel erkilengil.

  "Ég ætla að hafa Skotland með háum

  tignarlegum fjöllum, tærum bláum

  vötnum, allar ár þeirra fullar af laxi,

  undursamleg dádýr í fögrum skógum

  þeirra, dali alla gróðursæla og

  borgir þeirra glæsilegar.

  Skotar verða síðan eldklárir,

  hugrakkir, myndalegir....."

  Hér greip Gabríel erkiengill framm í

  fyrir Guði.

  "En herra, ert þú ekki að mismuna

  Skotum allhressilega, og hlaða undir þá

  umfram aðra jarðarbúa"?

  "Nei, alls ekki" svaraði sá heilagi,

  "ég er ekki búinn að segja þér hverjir

  verða næstu nágrannar þeirra".LoL

  Já, þetta var góð ferð út á Vatnsnesið.

  En lítið hlýnaði þessa 3 daga sem húsfreyja

  vísiteraði norðurlandið, og sá gamli upp á

  Þrælsfellinu, spýtti við tönn og yggldi sig þegar

  húsfreyja forðaði sér aftur suður í borgina við

  sundin bláu.

  Merkilegt nokk, hafði vorgyðjan ratað þangað

  yfir Hvítasunnuhelgina, og tók á móti húsfreyju

  með 17 stiga hita, sól og blíðu.

  Kötturinn tjúllaðist af einskærri gleði yfir því að

  losna úr bifreiðinni, og veltist í grænu grasinu

  við hlið 10 ára djásnsins, sem brosti allan hringinn:

  "MAMMA, SUMARIÐ ER LOKSINS KOMIÐ".

  Það var og.

  Góðar stundir og gleðilegt "alvöru" sumarCool.


mbl.is Sumarið mætt í borgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband