30.4.2010 | 14:29
Réttarhöld?
Yfir fólki sem ætlaði að rífa hressilega
kjaft fyrir þjóðina, og vera með
smá pottaslátt og pönnubarning
uppi á svölum Alþingis?
Í alvöru?
Húsfreyja hefur heyrt því fleygt að
í þingsölum erlendum, hafi það gerst
að þingmenn hafi barist,
eggjum, grautfúlum, verið kastað,
en menn eigi að síður haldið áfram umræðum.
Hví á þá að lögsækja nokkra Frónbúa
fyrir "hávaðasamar skoðanir" inn í sölum Alþingis?
Húsfreyja fylgist stundum með "málaflutningi" sjónvörpuðum,
niðri á Alþingi, þar sem þeir meiri fjöldi ræðumanna
svona "suðar" ræðu sína "mónótón", á meðan aðrir "rymja"
sig í gegnum hana, svo minnir á lélega upptöku af "Hamraborginni"
frá því um 1920.
Örfáir brýna raust sína, og láta hressilega í sér heyra.....
og á þær ræður hlustar húsfreyja af athygli.
Svo hún hefði haldið að "nímenningar" þessir, nú fyrir dómi,
hefðu aðeins verið eins og hressandi gustur í sölum Alþingis,
sett svolítið fútt í umræðuna, og örvað menn til að
láta að sér kveða.
En neipp!
En hvað veit sosum húsfreyja.
Máske allt í stórtjóni á þingsvölum þennan dag,
og verið að berja mann og annan.
Ofbeldi á auðvitað ekki heima í þinghúsi, og rétt
að koma ofbeldisseggjum út, en aðstæður í þjóðfélaginu
voru mjög magnaðar á þessum tíma, og fólk
bálreitt.
Láta kyrrt liggja, eftir að búið var að rýma, hefði verið
skynsamlegt að mati húsfreyju.
Tekur það fram húsfreyja, að hún var ekki á staðnum,
og þekkir ekki málsatvik.
Svo mörg voru þau orð.
Húsfreyja svo á leið í Kringluna með 9 ára djásnið.
Taka nokkrar rússibanareisur í stigunum,
kaupa kíwí, yddara og sveskjur.
Búin að þvo slatta af þvotti, húsfreyja,
hengja út í vorblíðuna, týna kettinum...og
finna hann aftur.
Sumarið lætur svo bíða eftir sér, þrátt fyrir að sumardagurinn
fyrsti sé löngu liðinn.
En við Frónbúar höfum sosum ekkert annað að gera,
en að bíða eftir sumri.
Það er svo "rólegt og huggulegt" að vera stödd í miðju kreppufári.
Góðar stundir. Kíwíkaup næst!
Réttarhöldin blettur á réttarfarinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.