Nýir gjaldmiðlar?

Kisulóran mín.  Blessaðir Kanarnir alltaf snjallirGrin.

  Gerðu "páfagauk" konu einnar upptækan,

  því konuræfillinn hafði eigi staðið í skilum

  með afborganir af húseign sinniShocking

  Ekki nóg með það að "gæludýrið" væri tekið

  með harðræði upp í skuldina,

  heldur gengu verktakar hins ágæta Bank of America

  í það að "eyðileggja" húsgögn konunnarW00t.

  Makalaust athæfi atarna.

  Og nú er konuvesalingurinn í sjokki, með mergjaðan

  ofsakvíða yfir húsgangna- og gaukstjóni

  þessu, á meðan gaukurinn Lúkas er sjálfsagt allur úfinn

  og stúrinn yfir því að geta ekki tyllt sér lengur

  á uppáhaldssófabakið sitt, og argur yfir því hafa þurft að gista

  óhrjálegt skrifstofuborð verktakanna sem skemmdu sófannPinch.

  Fimmtíu þúsund dollara vill kvíðafulla konan fá

  í skaðabætur frá bankanum fyrir hremmingar sínar og Lúkasar....

  og það þrátt fyrir að Lúkasi ræflinum hafi

  verið skilað með vinalegri afsökunarbeiðni frá

  bankamönnum og konum....Halo

  Jamm, á þá altént konan að geta skellt einhverju af þeim

  dollurunum upp í fasteignaskuldinaTounge.

  Hehehe...skondin frétt.

  Hvað ætli annars að "gangverðið" á páfagaukum sé?

  Já, og þá öðrum gæludýrum?

  Því færi svo að frónverskir bankamenn tæku ameríska bræður

  sína sér til fyrirmyndar, og færu að gera "gæludýr" sér

  að góðu upp í skuldir, þá á húsfreyja eðal læðu.

  Bröndótta, barngóða, húsvana en að vísu eilítið "gallaða"!

  Hún er með skarð í vinstra eyra eftir ægilegan bardaga

  við fresskattargrey, sem missti sneið úr læri í viðureigninni

  við kisu húsfreyjuPinch.

  Haltrar síðanBlush!

  En það má alveg líta svo á, að læðurófan sé

  líkt og hin dásamlega frónverska sauðkind

  vel "mörkuð"..."aftur-þríhyrnt -skorið" mætti lýsa

  eyra læðu....svo máske það sé bara bónusWink.

  Húsfreyja ætti kannski að bjalla í bankastjórann

  sinn, og kanna hvort hún geti ekki sent þeim

  köttinn næstu mánaðarmót í stað peninga...

  og málið er dauttDevil.

  Lán húsfreyju að fullu greidd!

  Nah!  Gengur ekki!

  Níu ára djásnið tæki það aldrei í mál.

  Dýrkar læðuna, enda er djásnið eina barnið

  í 25 kílómetra radíus sem á "kött með skarð í eyra"LoL.

  En mikið rosalega eiga margir "halta" ketti í hverfinu......Whistling.

  Góðar stundir og hugsið vel um gæludýrin ykkar....tala ekki um

  sé bankinn á hælunum á ykkurBandit.

 


mbl.is Banki tók páfagauk upp í fasteignaskuld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ætli þessir "verktakar" sem bankinn sendi vinni líka fyrir mafíunna?

Óskar Arnórsson, 13.3.2010 kl. 12:49

2 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

Það læðist að manni illur grunur, Óskar...illur grunur!

Sigríður Sigurðardóttir, 13.3.2010 kl. 19:28

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

...aðferðin talar sínu máli...

Óskar Arnórsson, 14.3.2010 kl. 01:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband