8.1.2010 | 15:34
Þrjóskir, ósveigjanlegir, ósanngjarnir...
...ræningjar og hryðjuverkamenn!
Frónbúar allir!
Jaso!
Það er aldeilis.
Við bara "ótíndur rumpulýður" hér úti
á skeri úti við nyrstu mörk hins byggilega heims.
Forfeðurnir húsfreyju samkvæmt þessu, ræningjar og glæpamenn,
og húsfreyja þrjóskur, ósveigjanlegur og ósanngjarn
hryðjuverkamaður.
"Asskoti er að heyra þetta" hefði afi húsfreyju sagt,
"en "Tjallinn" hefur nú aldrei stigið í vitið, þegar
kemur að samskiptum við aðrar þjóðir", og afi hefði
dregið upp rauðköflóttan vasaklút og snýtt sér hressilega.
Húsfreyja veit ekki betur en að hinir rænandi og ruplandi
fornu víkingar, hafi bæði "rænt" fólki frá Írlandi og Bretlandseyjum,
til að hafa með sér sem þræla til Íslands.
Og að langt er síðan þrælahald var lagt af hér
uppi á litla Fróni, enda þjóðin löngu orðin blanda
afkomenda víkinga og þræla.
Húsfreyju virðist þá nokkuð ljóst að "ræningjagenið"
hafi við Frónbúar erft frá víkingum,
á meðan Írar eru dæmdir til að hafa látið
til falla "hryðjuverkagenið"...samanber IRA og
Sin Fein.
En máske að við höfum svo fengið meingallað "gen" frá
bresku þrælunum, sem gerir okkur svona ósveigjanlega,
þrjóska og ósanngjarna.
Enda breskurinn ekki þekktur fyrir sveigjanleika og
sanngirni þegar kom að nýlendustefnu þeirra hér
áður fyrr.
Neipp!
Þá var það mottóið að "drottna og kúga" sem gilti.
En húsfreyja verður að játa, að það fer okkur ekki vel,
Frónbúum, að lifa við kúgun og undirokun.
Fáum grænar reyni einhver að "drottna" yfir okkur.
Búin að reyna það með norskum fyrst og síðan
með helvískum Baununum öldum saman.
Lá við að við yrðum "útdauð" sem þjóð þá
hans hátign danski kóngurinn "drottnaði"
yfir oss.
Enda taldi sá hái herra og undirsátar hans
að myglað og rottuétið mjöl væri fullgott ofan í okkur.
Eigi að síður þraukuðum við sult og seyru, pestir og náttúruhamfarir
á þrjóskunni og seiglunni.
Tækifæri til að vera ósveigjanlegir og ósanngjarnir
voru enginn hér uppi á litla Fróni lengi vel.
Svo máske hefur þetta meingallaða "breska gen"
legið í dvala í okkur þar til nú?
En er nú "upprisið" með mergjuðum látum og djöfulgangi,
enda verið vakið til lífsins af argvítans argintætunni
henni "Ísbjörgu" með djöfullegum peningagræðgiþulum
og "alþjóðagjaldeyrissjóðssæringum".
Þrjósk þjóð?
Ekki spurning!
Ósveigjanleg?
Ósanngjörn?
Eða einungis að reyna að læra að
berjast fyrir lífi sínu í hinum stóra suðupotti
"drottnandi" ríkja og kúgaðra ríkja?
Ekki gott að segja.
Fyrst að bæði "ræningagenið" og "hryðjuverkagenið"
virðast vera í FULL SWING hjá þjóðinni líka.
Eða það meinar "Tjallinn"!
Góðar (ó)sveigjanlegar og (ó)sanngjarnar stundir.
Hinir þrjósku Íslendingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
heyr heyr
alltaf góð
Sigrún Óskars, 8.1.2010 kl. 17:01
Þrælasölu genið er að virka á fullu í honum ennþá, verst að hann skuli ekki hafa náð sér eftir þorskastríðið, "grey kallinn,, hann hefur ekki náð sér eftir að hann var rekinn úr kartöflugörðunum með togarana sína, ættli hann hafi skrifað þessa grein á heylsuhælinu, hver veit
Eyjólfur G Svavarsson, 8.1.2010 kl. 22:40
Þakka þér elskulegi kollega.
Ekki gott að segja, Eyjólfur hvar karluglan samdi sína "fróðlegu" grein um eðli okkar Frónbúanna...jamm og ekki ólíklegt að hann sé enn sár eftir tapið í Þorskastríðunum, en alltaf fer það eitthvað slæglega fyrir brjóstið á mér þegar fólk dæmir heilu þjóðirnar sisona, eftir atburðum líðandi stundar.
Þakka ykkur kærlega innlitið og kommenta.
Sigríður Sigurðardóttir, 9.1.2010 kl. 20:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.