5.1.2010 | 17:49
Mister Grímsson.
Var ægilega flottur á því.
Synjaði lögum um kerlingafáluna
hana "Ísbjörgu"!
Við, "pöpullinn" í landinu eigum að ráða,
segir Mister Grímsson.
Svona einu sinni.
Nema að byrjað verði upp á nýtt í þinginu
að semja um "kerlingarhelvítið"!
Þá fer annað ár í ekkisens, árans kjaftavaðal.
Og þá þurfum við sauðsvartur almúginn ekkert
að kjósa, frekar en um fjölmiðlafrumvarpið
eina og sanna.
Jamm.
Aftur á "núllpunkt" með óhræsiskerlinguna.
Nema elskulegir norskir frændur okkar
segja okkur fara LAAANGT niður fyrir núllið.
Beina leið í efnahagslegt SVARTHOL!
Tóm fokking tjón og tjara í peningamálum frónverskra,
og allt út af Ísbjörgu.
Var ekki búið að gefa það út af ÖLLUM mikilsvirtum aðilum,
bæði norskum, breskum, hollenskum og hvað ekki,
að kerlingarherfan hún Ísbjörg skipti ENGU,
þegar kæmi að lánum frá AGS, Skandinavíu
og fleiri góðum ríkjum til handa vesælum frónbúum?
Neipp!
Ekki aldeilis, eftir þessu að dæma!
Mister Grímson sendi okkur eina herlega salibunu beina leið í
SVARTHOLIÐ segja yndislegir norskir frændur vorir.
Ó, vei!
Vesöld!
Volæði!
Blankheit!
Gjaldþrot!
Krísa!
Þraut og pína.
Jamm.
En Mister Grímson var flottur, fínn og strokinn í sjónvarpinu.
Góðar stundir.
Segja efnahagslegt svarthol blasa við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Jebb, nú fer hræðsluáróðurinn að dynja á Íslendingum af alvöru. Hann Ólafur Ragnar er snillingur!
Geir (IP-tala skráð) 5.1.2010 kl. 19:44
Já, og gott betur, Geir...og gott betur!
Sigríður Sigurðardóttir, 5.1.2010 kl. 19:57
það er aldeilis orðbragðið á húsfreyju
flott hjá þér
Sigrún Óskars, 6.1.2010 kl. 11:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.