Súperhetjur með sterka ímynd?

274895-53224-catwoman_super  Jaso! 

  Í gær köstuðu Frónbúar af sér

  svörtu sauðargærunni, og gerðust

  "súperhetjur"  eftir því sem Poul nokkur Weile

  lét eftir sér hafa í fjölmiðlum.

  Og í dag eignuðust Frónbúar  svo "sterka ímynd"

  samkvæmt manni að nafni David Hoskin.

  Jeminn!

  Með þessu áframhaldi verðum við að gera Jóhönnu Sig.

  að drottningu og Steingrím Joð að "drottningarmanni"!Devil

  Auglýsa svo landið fyrir umheiminum, sem staðinn þar sem

  ævintýrin gerast, drottningar fæðast fullskapaðar(.....heita allar

  Jóhönnur by the way), súpermenni og súperkonur sveima

  skikkjuklædd um loftin blá, leðurblöku-unglingar aka um á

  "Bat-mobile-farartækjum" og börnin....já börnin.

  Að sjálfsögðu eru þau litlir "Bósar ljósár" sem svífa

  um og tína blóm, og gefa ferðamönnum sem koma

  til að berja dásemdina augumLoL.

  Allir fá eitthvað við sitt hæfi í landi "súperhetja" og "sterkrar ímyndar"!

  Nema máske vesalingurinn hann "Goggi Saltmýri" (lauslega þýðing húsfreyju á

  nafni Geoff SaltmarshDevil).

  Hann sagði ferðir breskra til litla Fróns hafa aukist um heil 20 prósent!

  Jamm!  Tuttugu prósent!

  Auðvitað er allur þorri breta spenntur fyrir því að

  líta augum "alvöru hryðjuverkamenn"Whistling

  Og það heila "fokking kóloníu" af mergjuðum "terroristum",

  sem brýna nú vopn sín í gríð og ergPinch.

  Garðklippurnar!

  Stunguskóflurnar!

  Bévítans stórhættulegu "slátturvéla-skriðdrekana"!

  Húsmæður frónverskar sjást jafnvel brýna "eldhúshnífa"

  sína úti á svölum og sólpöllum í góðviðrinuW00t.

  Ja, svei.

  En spurning er:  Finnst Gogga Saltmýri þetta nógu "krassandi"

  fyrir "terrorista-þyrsta" samlanda sína?

  Eða verðum við reisa eitt herlegt "hryðjuverkamannasafn"

  niður við höfn, fyrir þá bresku?

  Máski við hliðina á hálfreistu "tónlistarhöllinni" frá hryðjuverkagóðárunum?

  Sýna þeim "vopnin" frá "potta-og sleifabyltingunni"LoL.

  Hafa svo huggulega og vel skipulagða "Z-biðröð" fyrir framan safnið,

  svo hinir bresku falli nú áreiðanlega í stafi af lotningu og gleðiWhistling?

  Jamm, okkur fellur alltaf eitthvað til, hér uppi á

  litla Fróni.

  Aldrei dauður tími.

  En sólin næst úti á sólpalli.

  Góðar stundir súperkonur- og menn.

  Megi ímynd ykkar aldrei fölna!


mbl.is Ímynd Íslands er sterk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband