Færsluflokkur: Bloggar

Góðir staðir!

19224d1241115170-cute-cats-funny-cats-0152-1-  Læðan húsfreyju, ætti sko aldeilis ekki sjö dagana sæla,

  hefði hún snöflað í sig "90 þúsund kalli"W00t!

  Væri núna á mergjuðu "uppsölulyfi" fyrir

  ketti, laxerólíu og "verk og vindeyðandi"Devil.

  Skítakassi hennar væri staðsettur undir

  "dótasmásjá" átta ára djásnsins, sem og

  allir "hárboltar" er upp gengu úr læðu.

  Fengi sko engan harðfisk, sú loðna næstu

  vikurnar.....ekki fyrr en húsfreyja hefði lágmark

  89.999 krónur í höndunum frá ketti aftur.

  Væri í lagi að láta svona eina krónu liggja á milli hlutaWhistling.

  Hehehehe...húsfreyja mátti tilGrin.

  Mikið er annars notalegt að ekki skuli vera til

  90 þúsund króna peningaseðill hér uppi á litla Fróni.

  Húsfreyja væri með lífið í lúkunum, áskotnaðist henni

  einn 500 evru seðill.

  Næsta víst að hún færi í bullandi "panikk" að finna

  "góðan stað" til að geyma slíka fúlgu.....fyndi fljótlega

  alveg "brilliant góðan stað" .....og eins og

  ALLIR aðrir "góðir staðir" húsfreyju,

  hyrfi "500 evru-staðurinn" þar með "gjörsamlega"

  af yfirborði móður jarðar.

  Útstrokaður!

  ERASED!

  Núllaður út úr tölvumengi jarðar!

  Staðsetningarhnit "unknown"!

  Að eilífu!

  Nú veit eigi húsfreyja hvort hún sé sér

  á báti hvað varðar "góða staði", en hæfileika þennan

  til að upphugsa þá og finna og síðan

  algjörlega "gjöreyða" þeim hefur hún erft frá

  annars ágætri móður sinni.

  Hæfileiki þessi byggist á því, að upphugsa og finna "góða" geymslustaði

  fyrir "mikilvæga" hluti, verðmæti og peninga,

  koma síðan mikilvægu hlutunum, verðmætunum og peningunum

  fyrir á fundnum "góðstaðnum" og......

  NADA!

  NÚLL og NIX!

  NICHTS!

  INGENTING!

  Helv...fokking fokk "ekkert" finnst af "góssinu" aftur.Angry

  ALDREI!

  NEVER!

  Hverfur inn í "góðstaða-eilífðina" miklu.......Pinch....eða máske

  að það sé til sérlegt "SVARTHOL" á sporbraut um móður jörð,

  sem "sogar eingöngu" að sér "góða geymslustaði"W00t!

  -DÆS-

  Á þá húsfreyja slatta af dáfögrum gullhringum, einhverja

  hrikalega fúlgu af frónverskum peningaseðlum,

  heilu haugana af mikilvægum ábyrgðarskírteinum

  heimilistækja er biluðu innana 1-3 ára frá kaupum

  og einhverra hluta vegna: heilt FJALL af pappírsklemmum og

  sikkerhetsnælum,  á sveimi í slíku svartholi!

  Jamm, merkilegt þetta "góðstaðamál"!

  Veit bara húsfreyja, að hún hefði alveg þegið að

  fá einhvern annan "hæfileika" í vöggugjöf en þennan.

  Hefði vel getað hugsað sér að vera "fiðlusnillingur"....annar

  Paganini kannski....nú eða flott ballerína....Barysnikov...Devil?

  En húsfreyja getur þó þakkað sínu sæla, að hafa kveikt

  snemma á perunni, hve "hættulegir, svikulir og HVERFANDI"

  "góðstaðir" þessir eru.

  Reynir nú ætíð að "geyma" allt á mjög einföldum og mikið

  "áberandi" stöðum, og þar sem fólk gengur mikið um.

  Ísskápurinn er VINSÆLL geymslustaður húsfreyjuDevil.

  Hverjum dytti líka í hug að leyta að "skarti" húsfreyju

  í frystihólfinu?

  Eldhúsborðið kemur líka sterkt inn sem geymslustaður

  og sömuleiðis skóskápurinn frammi í forstofu.

  Og ábyrgðarskírteini hafa aldrei týnst hjá húsfreyju,

  eftir að hún skellti þeim við hliðina á tómatsósunni

  inni í búri!!

  Jamm!

  En finna til matinn næst....er við hliðina á gullhringjum og

  hálsmenum í efstu frystiskúffunniTounge!

  Góðar stundir...og gætið ykkar á "góðu stöðunum"!

 

 

 

 

 

 


mbl.is Kötturinn át 500 evruseðil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórslys...

iceland-geothermal  ...í "stórasta" landi í heimiPinch.

  O jæja.

  Merkilega margir landar

  húsfreyju trúðu á frjálshyggjuna,

  "útrásina, og að eilífu "peningagræðandi banka".

  Sorglegt ef það kostar þá sem "trúðu" fjármálasnillingum,

  útrásarvíkingum og bankaeigendum, svo heimili þeirra, vinnuna

  og vonina.

  Óréttlátt?

  Ekki spurning.

  Vonlaust?

  Aldrei!

  Húsfreyja var ætíð frekar "efagjörn" þá

  menn reyndu að selja henni "gullið við enda regnbogans",

  hélt að sér höndum og er ekki í bísna slæmum málum í dag.

  Blæðir að sjálfsögðu "fjárhagslega"  í kreppunni eins og öllum,

  en hún ræður enn við afborganir af íbúð sinni og bíl.....og

  það þó húsfreyja og bóndi hafi asnast til að þiggja

  "myntkörfulán" til að kaupa bílinnPinch.

  Þar "trúðu" húsfreyja og bóndi bílasölumanni þá hann sagði

  að þetta væri það besta og HAGSTÆÐASTA í bílakaupum.

  Nú eru húsfreyja og bóndi búin að greiða sem samsvarar

  einni og hálfri bifreið, skreyttri gulli og demöntum fyrir

  Honduna sína...og eiga sjálfsagt annað eins eftir....ef

  ekki meiraAngry.

  Hafa þau hringt í bílasölumann að kveldi og "andað í símann" hansBandit?

  Sei sei nei.

  Bílasölumaður blessaður trúði nefnilega líka orðum sínum.

  Selur engum bíl á Fróni í dag, hvorki á myntkörfuláni eða öðrum lánum.

  Gullslegnu skartgripaskreyttu bílarnir verða látnir duga LENGI!

  Svo sei sei nei!

  Húsfreyja mun taka kreppufárinu af stóískri ró

  írsku þrælanna hér uppi á litla Fróni landnámsáranna.

  Hélt í þeim lífinu, telur húsfreyja.

  Og hún "trúir" því að Frónbúar muni vinna sig saman

  út úr stórslysi þessu, með sprengjukrafti hinna "sönnu víkinga"

  fortíðarinnarWink.

  Finnum leiðir.

  Látum hlutina ganga upp.

  Rísum upp úr öskunni, eins og fuglinn Fönix.

  Og það þó að hinir "fölsku víkingar útrásarinnar" verði

  hvergi nálægir....burtflognir á ónefndar suðurhafseyjar...

  úthrópaðir af íslensku þjóðinni....en samt með sand

  af seðlum íslensku þjóðarinnar enn í sínum vösum.

  Þeir mega eiga sig, helvískir.

  Við hirðum eignir þeirra hér upp í skuldir.

  Stöndum saman 300.000 hræður út í miðju ballarahafi.

  Erum seig.

  Lifum þetta af.

  Því okkar er landið.

  Okkar er lífskrafturinn.

  Okkar er baráttuviljinn.

  Við erum "auður" þessa landsInLove.

  Húsfreyja vill enda pistil þennan á ljóði Þorsteins Erlingssonar,

  þó stutt sé síðan hún brúkaði það hér.

    Eyjan vor er engum köl,

    er þú brosa lætur

    hennar morgna, hennar kvöld

    hennar ljósu nætur.

    Hún á okkar heita blóð,

    hún hefur okkur borið

    til að elska líf og ljóð,

    ljósið, frelsið, vorið.

                                        Þ.E.

  Góðar stundir.

 

 

 

 


mbl.is „Uppskrift að stórslysi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tólfta! Hrikalegt!

bingonumber12  Húsfreyja er í djúpum!

  Á eftir þessu, að minnsta kosti "9"

  ástarsambönd "í bullandi skuld" til

  að tryggja pottþétt að

  hún rölti æviveginn með hinum

  "eina og sanna".

  Jeminn!

  Djísuss!

   Hvað segir bóndi ef húsfreyja fer nú

  á stjá næstu 9 helgar, og dröslar

  með heim "keppinaut" að morgni dagsW00t?

  Nýjum hverja helgi eftir eldheitt ástarsamband

  í viku!

  "Bara til að hafa það á hreinu, að þú sért

  mín eina sanna ást, vinur" hljómar einhvern

  veginn ekki alveg nógu sannfærandiHalo.

  Ekki víst heldur, að átta ára djásnið gúdderi

  að múttan kynni "9 stjúpfeður" til sögunnnarPinch.

  Jamm, mikil og merkileg speki þarna hjá stærðfræðingnum

  í "niðri og undir" Ástralíu.

  Hlýtur að vera afspyrnu fjörugt ástarlífið hjá þeim,

  ef allir eru lágmark í 11 samböndum ,

  áður en þeir hitta hinn eina og sanna lífsförunautLoL.

  Er sem húsfreyju hefur lengi grunað:

  Ástralir "rokka"Tounge!

  Góðar stundir inn í helgina, og megi allir

  Frónbúar finna sína einu sönnu ást......

  þó húsfreyja telji að "12" sambönd á mann hér uppi á litla Fróni

  bjóði bara upp á hrikaleg "allir að sofa hjá öllum-vandamál"Devil.

 

 
mbl.is Tólfta ástin sú rétta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sænskir í stórræðum.

1172042_3192_90x90  Hvað ætli blessaður lögreglumaðurinn

  hinn sænski hafi svo verið lengi að

  draga að sér þessar 900 krónur?

  Mánuði...hálft ár....eða máske lengur?

  Sjálfsagt betra að stunda svona fjársölsun

  á lengri tíma en styttri, svo minna beri á

  glæpnumWhistling.

  Kannske bara stungið undan einni krónu og fimmtiu aur

  á dag....í rúmt  eitt og hálft ár.Tounge

  Dálaglegt það.

  Saksóknaraembættið svíanna rannsakar nú málið.

  Eins og : Hvað gerði löggan við "allan þennan fjárdrátt"?

  Splæsti hann á sig sænskum eðal vínarbrauðum,

  eða einum öllara....nú eða hvoru tveggja....

  með "afborgunum"Devil?

  Ja, þrefalt svei og svínarí.

  Þetta er sko fjárdráttur í lagi.

  Allt eflaust á tjá og tundri hjá lögregluembættinu í hinu herlega

  ríki sænska kóngsins.

  Svo erum við Frónbúar að tuða um "spennerí"

  á frónverskum útrásarvíkingum og bankastjórum!

  "Icesafe"....iss!

  En............svona í restina.

  Ætli það kosti "nokkuð" að reka dómsmál í Svíaríki

  vegna 900 króna fjárdrátts lögreglumannsHalo?

  Góðar stundir.


mbl.is Rannsókn vegna meints fjárdráttar lögreglu - upphæðin 900 krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingja mennirnir.

summer-houses  Geta þeir ekki klárað að

  byggja "litlu sætu" sumarhúsin sín

  við Þingvallavatn, blessaðir?

  Ósköp eru að heyra þettaErrm.

  Máske orðnir auralausir, þeir Bogi og Örvar....

  nei, afsakið, Ágúst átti þetta að veraWhistling....innsláttarpúkinn

  í ham í kompjúter húsfreyju.

  Máske er líka skortur á "þyrlum" til flutninga á meira

  byggingarefniFootinMouth?

  Kannski áttuðu þeir félagar sig á því að þeir höfðu

  vanreiknað stærð sumarhúsa sinna...

  þurfa "miklu stærri" lóðir?!

  Jamm, ýmislegt getur komið til greina.

  En líklegast þykir nú húsfreyju að kreppuótætið

  og óhræsið hún "Ísbjörg" hafi sett strik í reikninginn

  hjá þeim kumpánum, og allt sé stóra strand í

  sumarbústaðabyggingum...þó "litlir og þröngir" séuWhistling.

  Nú er húsfreyja góðhjörtuð kona, og finnur til með þeim

  sem minna mega sín og kennir "sárt í brjósti" um

  sumarbústaðarlausa Boga og ÁgústaHalo.

  Hún á smá aur hjá "Sun Life" samkvæmt blaðsnepli

  sem kom inn um lúgu hennar á dögunum, og gæti hún nú

  kannski hugsað sér að lána þeim ólánsömu sumarbústaðamönnum

  aura þessa, svo þeir geti nú altént klárað að byggja úr því sem

  þyrlur hafa flutt á staðinnDevil.

  Eina sem hún fer fram á, er að

  lánsfé hennar verði henni skilað innan 10 ára,

  með 37% vöxtum,

  og í "evrum"Tounge.........

  Og að sjálfsögðu sé ríkið "ábyrgt" fyrir láni þessu,

  verði einhverjar vöflur á endurgreiðslunumLoL!

  "Ice-Sigga" í uppsveiflu þar með...heheheGrin.

  En Frónbúar verða máske lítið hrifnir af því að bæta við

  sig fleiri "ísuðum kerlingafálum" ....svo kannski húsfreyja

  passi bara áfram upp á sína "Sun Life"-aura og láti

  Boga og Ágústa um að redda sér lánum á öðrum vígstöðumCool.

  "Nýju" bankarnir á litla Fróni geta þá máske reddað þeim.......Whistling.

  Góðar sumarbústaðastundir.

 

 


mbl.is Hálfkaraðar glæsihallir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hana! Þar skall eitt árið enn...

Brúðkaup Nonna og Lóu 2009102  ... á húsfreyju!

  Og það í blankablíðu, sólskini og hita.

  Húsfreyja alveg grandalaus úti á

  sínum yndislega sólpalli í morgun,

  þega hún fékk "heilt ár" í hausinnErrm.

  Hefur sjálfsagt argvítans kreppuárið legið

  í leyni...setið um hana eins og rússneskur

  spæjari um CIA í kalda stríðinu...og svo "ÁRÁS"!

  Og "voila" húsfreyja er orðin árinu eldri en

  hún var í gærPinch!!

  Bara sisona!

  Eða svo túlka átta ára djásnið og Vigrinn

  atburðarrásina hjá húsfreyju í dag.

  Húsfreyja hefði máske átt að "fara huldu höfði"....

  "dulbúast" og neita að gefa upp nafn og kennitölu,

  þá "árið" barði dyraTounge.

  Nah!

  Þetta er búin að vera fínn afmælisdagur,

  með fjölskyldu og vinum í kökum og kaffi úti

  á sólpalli.....og svo sushi í kvöldmatinn.

  Það er með konur eins og eðalvín.

  Verða betri með aldrinumGrin.....ekki satt herramenn?

  En djásnið búið að þræla húsfreyju í gegnum

  lestrardæmi og lesa fyrir bónda.....og nú bara verðu hún að fá

  múttuna í bólið.

  Góðar stundir. Current Mood - Happy 






Vesen er þetta!

the-man-in-the-moon-kristin-weldon-peri  Ostur!

  Silfurtungl!

  Pappírstungl!

  Og nú trétungl!

  Geta menn ekki komi sér saman um, úr hverju

  máninn okkar jarðarbarna er?

  Kanarnir segjast hafa flutt heilu "kílóin ef ekki tonnin"

  af tunglgrjóti til jarðarW00t!

  Séu búnir að "fljúga" til tunglsins all oft,

  taka þar lendingu, og "stíga" stór skref á "tunglverskri" jörðCool.

 (Og það þrátt fyrir "mergjaða traffík af geimrusli" á sporbaug í kringum móður jörð.)

  Má þá ekki ganga í að "efnagreina" bévítans tunglgrjótið.....

  altént eitthvað af því?

  Nú máske kemur þá í ljós að tunglið okkar jarðarbúa hafi eitt sinn

  verið skógi vaxið "frá fjalli til fjöru"....eða nei, ekki fjöru....

   eða jú,.....átti ekki einu sinni að hafa verið vatn á tunglinu?

  En jæja, látum vatnið liggja milli hluta, þó húsfreyju þyki líklegt

  að heilu haugarnir af regnskógum eða öðrum skógum á

  tungli voru hefðu þurft eitthvert smotterí af vatniPinch.

  Svo virðist eitthvað hafa klikkað illilega í vistkerfi tunglsins,

  (ef til vill "vatnsskortur"Devil)

  skógarnir veslast upp, og eftir varð "steingert trérusl" í

  massívu magni....og eitt slíkt má þá finna í fínum "glerkassa"

  Ríkisminjasafns Niðurlendinga....með gylltum áletruðum skildi.

  Og þeir háu herrar Hollands bara bísna ánægðir með sinn

  tunglverska "kolamola"!

  Ætla að halda áfram að dásama tungldýrðina, hina steingerðu.

  Datt þá húsfreyju í hug, að ef Niðurlendingar eru almennt

  hrifnir af "steingerðu trjádóti" hvort ekki mætti endurnýja

  gamlar mógrafir hér uppi á litla Fróni, og senda þeim nokkur

  tonnin af mókolum, svona sem sárabætur fyrir Icesafe-vesenið?

  Getum sent þeim einhvern slatta af glerkössum með...

  gegn vægu gjaldiWhistling.....sem yrði þá aftur látið renna í það

  að greiða Icesafe-skuld "óreiðumanna" við HollendingaTounge.

  Nei, bara smá pæling, húsfreyju, hér.

  En slæmt að "vita ekki" úr hverju tunglið okkar er.

  Ætli engum geimfaranum hafi dottið í hug að spyrja "karlinn í tunglinu" um máliðLoL??

 

  Máninn fullur fer um geiminn

  fagrar langar nætur.

  Er hann kannski að hæða heiminn

  hrjáðan sér við fætur?

  Fullur oft hann er

  það er ekki fallegt

  nei, það er ljótt

  að flækjast hér og flakka þar

  á fyllerí um nætur.

                                      (Veit einhver höfund?  Húsfreyja búin að gleyma.)

 

  Góðar mánaskinsstundir!22698MoonGoddess..

 

 


mbl.is Tunglgrjótið reyndist vera tré
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra seint en aldrei!

frenchrevolution  Blessaður öðlingurinn hann

  Hannes Hólmsteinn sem vaðið

  hefur þoku og reyk frjálshyggju,

  einkavæðingar og útrásar er bara

  mættur með sparipottinn sinn og

  hrísgrjónagrautssleifina niður

  á AusturvöllDevil.

  Enn sætt!

  Þokunni hjá honum loksins að létta,

  og nú sér hann kristaltært, að þetta

  var "doldið vanhugsað" og geyst farið

  í allri frjálshyggjunni síðustu 16 - 20 árin.

  En bara pínu bara smá vanhugsað....og er mest

  helvísku pakkinu sem tók við að leysa

  úr öllum hroða Haarderans og kó, að kenna

  að svona illa fórAngry.

  ALLS EKKI Dabba að kenna!Halo

  Því Dabbinn var búinn að tróna LENGI sem mýfluga á mykjuhaug

  við stjórn landsins fyrst,

  og síðan í Seðlabanka,

  og vara við mann og annan...sem

  honum hugnuðust vel að vara við,

  hve illa gæti farið í frjálshyggjusukkinuWhistling.

  Var gjörsamlega misskilinn "Nostradamus" litla Fróns, Dabbinn

  sem enginn hlustaði á...nema auðvitað Hannes blessaður Hólmsteinn.

  Meira að segja flokksbræður "bláu handarinnar" skelltu

  skollaeyrum við varnarorðunumPinch.

  Og því fór sem fór.

  Ekki við Dabba að sakast.

  En helvítið hann Steingrímur og argintætan hún Jóhanna!

  Þar eru sko einstaklingar með brennimarkið "SEK" þvert

  yfir enniðShocking.

  Fíflin bara búin að "rústa" fjárhag litla Fróns á

  örfáum mánuðum.

  Setja heimilin á hausinn!

  Gera fyrirtækin gjaldþrota!

  Bankastjórar, útrásarvíkingar....hvaðGetLost?

  Núverandi ríkisstjórn er búin að klúðra öllu

  heila ekkisens klabbinu, það segir sjálft....ekki satt, Hannes?

  Yndislegt að Hannes Hólmsteinn skuli hafa

  séð "ljósið"....betra seint en aldrei, Hannes!

  Berðu þína potta á Austurvelli!

  Niður með Icesave!

  Búsáhaldabyltingin lifi!

  Bláa höndin blívur!

  Amen.

 


mbl.is Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Regnblaut föðurlandsást...

Vesturhópsvatn ág. 2009037  ...hefur gripið húsfreyju

  síðustu daga.

  Hefur dúllað sér við ýmislegt

  smálegt innandyra, á meðan

  regnið hefur lamið rúðurnar

  og tilveran utandyra hefur verið

  bæði dökkgræn og grá.

  Átti bísna góðan fyrsta dag í vinnunni

  eftir sumarfrí, húsfreyja, og allir virtust bæði glaðir

  og fegnir að sjá hana aftur.

  Ekki amalegt það.

  Er ekki litla Frón himneskt land?

  Eru ekki Frónbúar upp til hópa, dásamlegt fólk?

  Það er mat húsfreyju og hún næstum táraðist

  af tilvistargleði og ánægju með samlanda sína í dag.

  Og land hennar var ekki síður geislandi fagurt og

  tilkomumikið í gráum og grænum tónum regnsins

  í Þrengslunum nú síðdegis.

 

    Ó!  Ísland þú ert þvílíkt flott

    með þúfur og jökla og geggjaða fossa

    þótt veðrið sé reyndar grátlega gott

    með gjafmilda himna á rennblauta kossa

    þá ertu Ísland indælt sker

    ýktasti staður á jörðu er hér.

 

    Já!  Land mitt þú ert ágætis eyja

    æðislegt finnst mér hérna að lifa

    og lokum sjálfsagt dýrðlegt að deyja

    einn daginn er lífsklukkan hættir að tifa

    þá hvíli ég í þinni mergjuðu mold

    móðir mín góða, Ísafold.

                                          Andri Snær Magnason f. 1973

 

  Fer svo að styttast í afmæli húsfreyju,

  (bara smáafmæli í þetta sinn) en hún

  ætlar að splæsa á sig sushi og góðri

  bók á náttborðið að lesa.

  Mmmmm....gott að vera til.

  Bjartar stundir.

 

 


Myndir.

Vesturhópsvatn ág. 2009047  Verið dugleg að taka myndir í sumar, húsfreyja

  og datt í hug að smella nokkrum í albúm hér á síðunni. 

  Hér er bóndi að veiðum í Vesturhópsvatni.Vesturhópsvatn ág. 2009100

  Og hér er 8 ára djásnið með Svölunni á Akureyri.

  En kíkið endilega á albúmið.

  Góðar stundir.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband