Maður sem þorir...

133364703_5ad410ea7a  ..forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson.

  Engin gunga.

  Húsfreyja viðurkennir vel

  að henni hafði dottið sama í hug,

  hvað Norðulöndin varðar í Icesafmálin.

  Jafnvel viðrað þessa skoðun í þröngum hópi

  vina og kunningja, og alltaf fengið

  kröftug mótmæli til baka.

  "Getum eingöngu treyst á Norðurlandaþjóðirnar"

  er setning sem heyrðist æði oft.

  O, jæja.

  Húsfreyja hefur löngum verið treg í "stjórnmálahugsun"

  og nánast VANVIRK í "millilandadeiluþankagangi".

  Konan botnar bara ekki baun hví málin þurfa að vera

  svo flókin og langdregin.

  Og "allir" ætla að lána og hjálpa...en samt gerist ekki neitt.

  NÚLL OG NIX!

  NADA!

  Jamm.

  Húsfreyja er þakklát "vinum" okkar og "frændum"

  á Norðurlöndum, sem ÆTLA að lána okkur vesælum

  peninga í þrengingum, engin spurning þar.

  Skilur bara ekki af hverju lánin eru svona LENGI

  á leiðinniWhistling.

  Jamm, eins og sagði hér að ofan:

  Bæði TREG og VANVIRK!

  Og var farið að örla á grun hjá henni líkt og forseta

  vorum, að Norðurlöndin settu lausn Icesafe á oddinn,

  líkt og fleiri "góðhjartaðir" úti í hinum stóra heimiHalo.

  En sjálfsagt er það bara allt "tæknilegur misskilningur"

  hjá húsfreyju,  að hugsa slíkt,

  enda ÞURFTU frændur vorir á Norðurlöndum

  bara ekkert að lána oss aumum "fjármálavitleysingum"

  neina peningaCool.

  Jamm.

  En þá er það aðeins eitt:  Því eru ráðamenn frænda

  vorra að gefa það yfir höfuð út, að þeir ÆTLI og VILJI

  lána okkur örmum "frjálshyggjusukkurum"?

  Húsfreyja skilur ekki neitt í neinu.

  Hugsanir hennar um fáluna hana "Ísbjörgu", útrás, lán

  og kreppu eru orðnar eins og risastórt spilahjól

  í spilavíti andskotans:  PLACE YOUR BETS, PLACE YOUR BETS....Angry!

  Jamm.

  En bísna grand hjá forseta vorum að ÞORA að

  hreyfa við "ástkærum frændunum" norðan megin

  í Evrópu.

  Og við Frónbúar munum eftir sem áður ÆTÍÐ treysta og trúa...

  á "eigin" getu og kraftWink.

  Góðar stundir.


mbl.is Segir Norðurlöndin hafa beitt Ísland þrýstingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múgur og margmenni....

gryla  ...bílatraffík og biðröð í

  Borgarskóla rétt í þessu,

  þegar húsfreyja skrapp að kjósa.

  Enda eins gott að mæta, þegar

  kosið er um mesta "þvargviðri"

  í íslenskri stjórnmálasögu síðan

  Fullveldismálið var og hét.

  En merkilegt nokk, sá húsfreyja aðeins einn

  á stórum eðalvagni mættan að kjósa.

  Hefur sjálfsagt ekki átt góða útrásar-eitthvað

  eða bankagróðamenn að, og þar með haft lélegan aðgang

  að "útrásinni" og alveg misst af öllu

  "góðærinu", fyrir utan jeppadýrðina.

  Svona eins og við hin sauðsvörtu.

  Jamm.

  En að sjálfsögðu kusu allir RÉTTWhistling.

  Það sá húsfreyja í hendingu, af gleðisvip

  landa sinna er þeir komu af kjörstað.

  Þetta líka endemis þvarg, þvaður, bull og endaleysa

  allt út af kerlingafálunni henni "Ísbjörgu",

  er sjálfsagt búið að ganga langt fram af öllum Frónbúum.

  Viljum hana ekki.

  Þrasið og kjaftavaðalinn brott.

  Viljum boðlega lausn á málinu, og boðlega samninga fyrir land og þjóð.

  Með fleygum orðum ágæts manns:

  "Vér mótmælum allir"!

  Góðar stundir á kosningadegi.

 


mbl.is Um 26% kjörsókn í Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þokugrár kosningadagur.

436176848_b0a500797c Það hefur verið einhver suddi

  í höfði og hálsi húsfreyju að undanförnu.

  Bévískur "Ísbjargar-hor" rennur úr nefi,

  á meðan vírusar af verstu tegund

  hafa stigið mergjaðan "kreppu-Hrunadans"

  í hálsi hennarSick.

  Þegar hún svo hefur fregnað af

  "slatta af frónverskum milljörðum"

  sem gufa upp, í bönkum annarra landa,

  því eigi er "ólöglegt að ræna íslensku þjóðina"

  á ERLENDRI grund, hefur henni elnað sóttin að miklum munErrm.

  Hóst-hóst-snýt-snýt.

  Og á þokugráum morgni þjóðaratkvæðagreiðslu,

  sér húsfreyja varla nokkuð til í hugskotum sínum.

  Þar er enn dimmari þoka en utan dyra,

  og varla nokkra skímu að sjá, sem brugðið

  gæti ljósi á HVAÐ fer fram  á kosningastöðum í dagAngry.

  DÆS-

  Er verið að kjósa um "gömlu" lögin, sem aldrei

  hafa verið undirskrifuð eða samþykkt af forseta vorum,

  en eru samt í gildi, nema hjá "samninganefnd" Frónbúa,

  sem er að reyna að semja um ný "Ísbjargarlög" á breskum

  veiðilendum Elísabetu gömluW00t?

  Eða er verið að semja um "EITTHVAÐ ALLT ANNAÐ"?

  Jamm.

  En kannski er bara nóg að hafa einhvern "smá grun"

  um hvað málið varðar?

    Hér eru þokur afar tíðar,

    bæði á landi og sjó.

    Við sjáum upp í miðjar hlíðar,

    það ætti að vera alveg nóg.

                                               Ólafur Kristjánsson, Akranesi.

 

  Það var og.

  Svo nú fer húsfreyja á kjörstað.

  krossar á "réttan stað", og setur traust sitt

  á almættið og heiðarlega menn.....sem ef til vill

  finnast á Fróni enn!

  Og að lokum:

    Ég trúi á ljós, sem lýsi mér,

    á líf og kærleika,

    á sigur þess, sem sannast er,

    og sættir mannanna.

 

    Á afl sem stendur ætíð vörð

    um allt, sem fagurt er,

    á Guð á himni Guð á jörð

    og Guð í sjálfum mér.

                                 Ólafur Gaukur-Erl. þjóðlag.

 

  Farið varlega í regninu og þokunni.

  Góðar kosningastundir.


Milljónir eru nánast smáaurar...

g18  ...þegar horft er til skulda

  útrásarvíkinga og bankahrunsmanna.

  Svona eins og gamli 10-eyringurinn

  var í bernsku húsfreyju.

  Þá gat húsfreyja, þá smávaxin lítil skotta

  með logarautt hár, aðeins fengið 2 kúlur í Vogsabakaríi

  fyrir 10-eyringinn!

  En þá eingöngu næði hún að láta afgreiðsludömuna

  sjá í nefbrodd sinn upp fyrir borðbrúnina á afgreiðsluborðinu...

  standandi á tánumWink.

  Jamm.

  Svo 60-70 milljónir eru bara smotterí í "harðlífi"

  Icesafe-deilu og kreppuniðurskurðar.

  Verður bara skorið heldur meira niður hjá Heilbrigðiskerfinu

  á næsta áriGetLost.

  Nú eða Menntamálaráðuneytinu!

  Almættið forði oss frá þeirri ósvinnu að þurfa að

  skera niður í Utanríkismálaráðuneytinu eða

  SamgöngumálaráðuneytinuPinch

  Lágmark að Frónbúar geti greitt "þotuliðinu" sæmilega

  "dagpeninga" og grafið nokkur "jarðgöng" milli

  nokkur hundruð manna byggðarlagaWhistling.

  Ef í hart fer væri ráð að láta "forsetaembættið"

  skila þessum smáaurumDevil.

  Forsetinn gæti greitt þetta auðveldlega til baka,

  á afborgunum með sömu vöxtum og aðrir Frónbúar

  greiða niður sínar skuldir, næstu 20 árinTounge!

  Góðar stundir....eru veðmál í gangi um "laugardaginn"Grin?

 

  P.S.  Aldeilis, öldungis, brilliant "niðurskurður" boðaður

  hjá "Besta flokknum" hans Gnarr:  Niðurskurður á Öspum!LoL


mbl.is Þriðjungi þegar verið eytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tyrkjaránið og Icesafe?

tyrkir_vestmannaeyjar  Hver er "fyrningatíminn"

  á "Tyrkjaránum"?

  Fyrnist slíkt máske aldreiGetLost?

  Er auðvitað með því svaðalegasta sem

  um getur í sögunni: Hrottafengin dráp,

  mannrán og mansal.

  Og það á tímum skaðræðis pesta, náttúruhamfara,

  barnadauða og vesaldar í voru litla landi.

  Vorum nánast í útrýmingarhættu, Frónbúar.

  Máttum ekki við því að missa einn einasta einstakling

  af landi brott.

  Svo "Tyrkirnir" frá Alsír undir forystu Jan Janzoon

  van Haarlem hins hollenska,

  fóru verulega illa með voru íslensku þjóð,

  og þá ekki síst Vestmannaeyinga.

  En nú hefur húsfreyja hingað til talið,

  að það væri ekki á almanna vitorði

  að hinn illvígi foringi þeirra herskáu "Tyrkja",

  hefði verið Hollendingur.

  Hélt satt að segja, húsfreyja, að slíkar staðreyndir hefðu

  aðeins verið barðar inn í höfuðin á skólabörnum

  í Eyjunum, þegar vísir lærdómsmenn fjölluðu um

  Tyrkjaránið í skólum.

  Verið svona minni háttar aukaatrið, sem gaf 0,1 í plús

  kæmi það fram á söguprófum barna annarra landshluta.

  Einn heilan í EyjunumWink!

  Jamm.

  En er þá máske vor frónverska "Icesafe-samninganefnd"

  öll úr EyjunumW00t?

  Fyrst "Tyrkjaránið" er orðið að "spilakubb" í Icesafedeilunni?

  1627!

  Og nú eigi sko að "rukka Hollendinga grimmt" fyrir

  langa,langa,langa....langa-afa og ömmu sem rænt

  var frá búi og börnum, og seld í ánauð til Algeirsborgar?

  Eða er máski Hollendingurinn Jan Schouten að

  rita eina meistaralega ritgerð um Tyrkjaránið

  á litla Fróni hér á 17. öldinni, og kominn með

  æluna upp í kok yfir framferði síns manns og nafnaSick?

  Eða er hann bara enn einn "Íslandsvinurinn" að

  styðja við bakið á "bestu vinum sínum"?

  Nú er húsfreyja fædd og alin upp í Eyjum.

  Fékk allar sögurnar af Tyrkjaráninu beint í æð

  líkt og aðrir krakkar í Eyjum.

  Rámaði jafnvel í að foringi þeirra frá Alsír,

  hefði verið hollenskur (gott ef hún fékk ekki "einn heilan" á síðasta söguprófiTounge),

  en þrátt fyrir það, hefur henni ekki tekist að "tengja"

  Tyrkjaránið við Icesafeþrasið á neinn máta!

  Ekki þó að hún rembist eins og rjúpan við staurinn!

  Hefur húsfreyja þó fylgst þokkalega grannt með

  Icesafeþvargviðrinu.

  Hún getur bara ekki með neinu móti lagt peninga

  til jafns við mannslíf!

  En máske er húsfreyja bara TREG og illa fyrir kölluð

  í höfðinu þessa dagana af flensufári.

  Veit sjálfsagt ekkert í sinn haus frekar en fyrri daginnShocking.

  Tyrkjaránið og Icesafe!

  Húmbúkk!

  Góðar stundir.

 

 


mbl.is Skulda Íslandi fyrir Tyrkjaránið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fullur haus af heyi.

9407B2CF-2E33-4387-B2B8-7CCD6FC50303  Válynd veður, stress og vesen með

  "dassi" af ellihrumleika hafa

  leikið húsfreyju grátt undanfarið.

  Í  kjölfarið hafa hreiðrað um sig í koki húsfreyju

  heilu andsk...hersveitirnar af "kitlvírusum",

  sem helst vilja halda "heræfingar" þá degi tekur

  að halla og húsfreyja vill svífa inn í draumalandið

  og dvelja þar við gott yfirlæti næturlangt.

  Brjálast þá allt í hálsi húsfreyju, og sér hún fyrir sér

  heilu herdeildarnar af vírusum hlaupa í röðum og

  kyrjandi:

  "Eigum við að dansa tvist,

  en gera húsfreyju óða fyrst,

  svo hósti hún og hósti í nótt,

  og taki að endingu banasótt". (Undir amerískum æfingahertakt.)

  Andskotinn í grásúrri mysu....hóst...hóst...hóst!

  Hrifning húsfreyju á hústökuliði þessu í hennar

  yndislega "Hálsakoti" er í lágmarki, svo ekki

  verði fastar að orði kveðið.

  Reynir reglulega að "eitra" fyrir vírusapakki þessu

  með hóstasaft, hunangstei, hálstöflum og heitum böðum.

  En skrattans hóstaherliðið virðist vera seigara en bæði

  fjandinn sjálfur og amma hans til samansAngry.

  Gefa "eiturbyrlandi húsfreyju" langt nef, og flissa

  að tilburðum hennar.

  Húsfreyja er að verða mát.

    Oftast svellin örlaga

    illum skellum valda.

    Fyrir brellum freistinga

    fáir velli halda.

 

    Við skulum láta lán og þraut

    lífsins glímu herða.

    Ýmsir mát á ævibraut

    alla tíma verða.

                             Herdís Andrésdóttir.

 

  Síðan hafði húsfreyja hugsað sér að bregða sér

  af bæ um helgina.

  Vísitera systur í Þorlákshöfn...eða jafnvel líta augum

  húsdýrin niður í Laugardal með 9 ára djásninu.

  En þá er bara allt í einu brostinn á hávetur,

  eftir myljandi fína vortíð í desember og janúar.

  Liggur við að það eitt að viðra köttinn úti á sólpalli,

  verði húsfreyju að fjörtjóniWink....hóst...hóst....hóst!

  Enda er sólpallurinn enginn andsk.... "sólpallur" síðustu

  daga, heldur "snjópallur", sem Olympíufólk í Kanada

  yrði stolt að hafa fyrir stökkpall, þá því dettur í hug

  að "skíðastökk" sé gáfulegt til íþrótta.

  Jamm.

  Húsfreyja er SÚR.

  Gallsúr!

    Skýin grá með gretta brána

    gegnum skjáinn sé ég minn.

    Blómin dáin. Himninum háa

    horfinn blái liturinn.

                                          Herdís Andrésdóttir.

 

  Ætlaði svo húsfreyja að ergja sig í framhaldi af

  þessu yfir Kanaríeyjaförum sem sætu berir

  á suðrænni strönd með bland í brúsa...og

  hóstalausir og "kyrjandi vírusalausir"LoL.

  En þá sá hún að "fárviðri" er nýlega gengið

  yfir þær sælu eyjar Kanaríbúa...með að minnsta

  kost 30 metrum á sekúndu og ENGU tjóni...svo hún

  hætti við hið snarasta.

  Vesalings fólkið þar syðra, að lenda í mergjuðum

  stormi og "fárviðri"Errm.

  Kemst ekki einu sinni á "Mannabar" til að svala

  sárasta þorstanum...snökt....snýt....hóstWhistling!

  Það er eitthvað annað en við hér uppi á litla Fróni,

  sem "mokum okkur" út á hverjum morgni,

  og förum allra okkar ferð frjáls og ..ummm...hóstandi,

  á "nelgdum og keðjum" í skafrenningi og ofankomu....

  Það eru einungis smá skakkaföll hjá skíðafólki hér sunnan

  heiða, sem búið er að bíða eftir snjó í ALLAN vetur,

  og þegar loksins kom nóg af honum,

  er ÓFÆRT í BláfjöllumW00t.

  Jamm.

  Húsfreyja er að sjá það æ betur, eftir því sem

  líður á pistil þennan, að hún hefur það í raun bísna gottWhistling.

  Og ætti ekki að vera að væla undan smávægilegum

  "vírusaheræfingum" í koki sínu....hóst...hóst.

  Hefur líka tröllatrú á alveg nýrri uppskrift að

  "hálsvírusaeitri" sem hún ætlar að reyna í kvöld...hehe..hóstDevil!

  Þeir "sönglöðu, kyrjandi vírusasvín" fá sko að kenna á því...Whistling.

 

    Þó við kvíðum kuldatíðum,

    kafaldshríð og lágri sól.

    Við skulum bíða, vorið blíða

    vermir hlíð og dal og hól.

                                   Herdís Andrésdóttir.

  Góðar og ánægjulegar vetrar...hóst..hóst...stundir.

 

 

 

 


mbl.is Hálka og éljagangur á Sandskeiði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er messuvínið...

bishop  í hinu íðilfagra veldi þýskra

  máske orðið í sterkara lagiTounge?

  Einn sjúss af því ef til vill á við

  3 tvöfalda hér uppi á litla Fróni?

  Hefur hinn yndislegi biskup þeirra,

  "Móðir Demi", eða "Theresa Moore"

   kannski bara treyst um of á

  "guðlega handleiðslu og forsjón",

  þá hún smellti sér drukkin undir stýrið

  á bifreið sinniHalo?

  Eða hvað?

  En kannski er þetta svo einmitt sönnun um,

  að Guð er alltaf á vaktinni yfir sínum ástkæru

  biskupum og kirkjunnar þjónumWhistling?

  Hefur breytt öllum "umferðarljósum" í "LOGARAUÐAN"

  sá himneski, á leið þeirrar hífuðu,

  svo hún yrði nú örugglega stöðvuð

  áður en hún færi sjálfri sér og öðrum á voðaPolice.

  Jamm.

  Vegir vors himneska eru órannsakanlegir,

  en líklega fjölgar "atvinnulausum" biskupum um einn

  í ríki þýskra í dagPinch.

  Vesen.

  Skyldi hún eiga rétt á atvinnuleysisbótumWhistling?

  Hehehe, húsfreyja bara varð að fá útrás fyrir

  meinlega genið sitt í dagDevil.

  Gleðst húsfreyja svo sannarlega yfir því,

  að ferð kvenbiskups þessa skyldi þó ekki enda verr,

  og að ekki urðu slys á mönnum eða dýrum.

  "Eftir einn, ei aki neinn" er prýðis gott mottó,

  sem allir ökumenn skyldu fara eftir.

  Góðar stundir.


mbl.is Biskupinn segir líklega af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Elskan...

bouquet5  ...á heimilinu í dag,

  var engin önnur en húsfreyja sjálfInLove.

  Bóndi reif sig upp í bítið, og kom heim færandi

  hendi með rauðar rósir og brúðarslör.

  Níu ára djásnið fékk svo að færa húsfreyju

  dýrðina inn í hjónarúm, því að sjálfsögðu

  fékk húsfreyja að sofa út á konudegiKissing.

  Dýrð og dásemd.

  Gleði og hamingja.

  Ó, að allir dagar væru konudagar.

  Gott að vera kona á litla Fróni í dag,

  og öllum konum óskar húsfreyja að

  til þeirra verði ort:

 

    Þú ert ung, og þú ert skír,

    og þú ert ægifögur.

    Í þér búa ævintýr

    og Íslendingasögur.

 

    Fyrir eitt þitt blíðubros

    bæri ég harm í hljóði,

    breiddi þér að fótum flos

    fágað mínu blóði.

               Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.

 

  Góðar konudagsstundir.


mbl.is Blóm fyrir elskuna í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó, vei! Fundur....

funny-pictures-cat-hates-your-opinion  ...enn og aftur.

  Hvað ætla menn LENGI að

  tala um Icesafe?

  Halda fund um málið?

  Röfla sig rauða og bláa í framan

  um hvert einasta smáatriði...hvert

  einasta agnarlítið atriði í gagntilboðum?

  Vera svo ÓSAMMÁLA um hvert einasta smáatriði...

  af því að það hentar ekki pólitískum frama þeirra

  að vera sammála?

  Hví er þessi umræða ekki löngu yfirstaðin?

  Átti að ræða þetta strax í upphafi kreppufjanda

  og bankahruns, og hafa lögfróða menn sér til

  stuðnings og fulltyngis.

  Taka þá nokkrar vikur eða jafnvel 3-4 mánuði

  til að fjalla um stöðu frónbúa, og semja síðan

  við Mister Brown og þá niðurlensku.

  En að röfla, þrasa, rífast út í hið óendanlega

  vikum, mánuðum saman...og "rúmu ári" frá

  bankahruni, vegna Icesafe er ekki í lagiAngry.

  Það "er líf" eftir Icesafe, ef þingmenn bara hætta

  þessu helv.... kjaftæði, ákveða að koma sér

  saman og ganga í það af hörku að SEMJA!

    Það er ekki til neins að tala.

    Menn töluðu milljónir alda

    um bölið á jörð og bót við því.

    Mest bull er mér nær að halda.

    Málæði aldrei til mikils dró.

    Er vitið komið til valda?

                                   Kristján frá Djúpalæk (Þögli).

    Góðar stundir.

 


mbl.is Fundur formannanna hafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hjartanleg hamingja.

perlan_1191282361  Ekki hægt að segja að

  niðurstöður þessar komi húsfreyju

  á óvart.

  Virðist einhvern veginn liggja í hlutarins eðli,

  að hamingjan stuðli að heilbrigðu hjartaSmile.

 

    Í allan dag hefur vorið verið að ljóma.

    Ég vaknaði snemma í morgun við fótatak dagsins.

    Við gluggann heyrðust himneskir söngvar óma.

    Hjarta mitt skalf við raddir fagnandi lagsins.

    .............

    Því þá er það lífið, sem yrkir sín ástarljóð og sögur,

    og æskan ræður ei lengur við hamingju sína-

    Já, gott áttu, veröld, að vera svo ung og fögur,

    og von er, að sólinni þyki nú gaman að skína.

                                           Tómas Guðmundsson

  Já, alltaf góður Tómas.

  Húsfreyja sér svo að önnur hver frétt í fjölmiðlum

  fjallar enn og aftur um kerlingarfáluna hana "Ísbjörgu".

  Og að menn hafi jafnvel sammælst um herfuna á þingi!

  Jaso!

    Þeir sameinast í félag eða flokk,

    til fundarhalds í lífsins hlekkjasmiðju,

    og gera sér og sínum gapastokk

    og segjast stunda mikilvæga iðju.

    Sé útsýn þeirra orðin nógu þröng,

    og enginn getur slitið tjóðurbandið,

    þá hefja þeir sinn heilagsandasöng

    og halda, að þetta sé- að frelsa landið.

                                      Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.

 

  Húsfreyja dólaði svo sér og 9 ára djásni í

  sjúkraþjálfun í morgun.

  Djásnið í 4 daga vetrarfríi, dæsti í morgunsólinni

  og sagði: "Það er gott að vera í fríi":

  Eftir teygjur, nudd og bylgjur á ellihrumum

  hrygg húsfreyju, brenndu mæðgurnar sér

  í Perluna.

  Skoðuðu bækur, lásu í bókum og að lokum, keyptu

  sér bækurHalo.

  Djásninu datt í hug eftir bókakaup, að hægt væri að rölta um

  í skóginum í Öskjuhlíðinni, en hætti snarlega við

  þegar út úr Perlunni kom.

  Nístingskaldur næðingur hafði rifið sig upp,

  og smeygði sér upp undir úlpur og ofan

  í hálsmál.  Brrrrrrrrrr....!

    Við Þorlákur.

 

    Þorlákur helgi

    fann aldrei að veðri

    að minnsta kosti ekki upphátt

    vissi líklega sem var

    að það væri ekki til neins

    enda maður klókur

    að svo miklu leyti

    sem hann var maður

 

    En ég er ekki helgur

    og því segi ég enn og aftur

    að mikið andskoti hata ég

    svona rok í sól

                     Þórarinn Eldjárn.

 

  Svo húsfreyja og 9 ára djásn létu gott heita,

  og brunuðu heim á leið með stuttri viðkomu

  í "svínslegu búðinni"Whistling.

  Þorir vart húsfreyja að nefna hlutina réttum

  nöfnum lengur, svo margir reiðir og æstir í

  þjóðfélaginu í dag.

 

    Skapari

    Kann vera

    að þú sért stoltur

    af sköpunarverki þínu

    sjötta daginn.

    Ég,

    sem þó er málið skylt,

    er ekkert yfir mig

    hrifinn.

                Kristján frá Djúpalæk.

 

  Húsfreyja svo komin í helgarfrí.

  Vill helst leggjast undir feld og

  lúra fram á vor.....en það

  er nú sjálfsagt bara flensuskítnum

  í haus og hálsi hennar að kenna.

  Verður borubrött og eldklár í slaginn

  þá næsti mánudagur ber dyraWink.

  Góðar stundir og góða helgi.

 


mbl.is Bros eru holl fyrir hjartað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband