28.10.2009 | 17:32
Afskrifa milljarða....
....fyrir Baugur "grúpp"!
Milljarða!!
Ekki sjens að banki húsfreyju
afskrifi eina einustu krónu af
þeim fáu milljónum sem hún skuldar í
íbúð og bifreið.
Ekki 50 aura!
En Baugur "grúppían" kann á kerfið!
Bara skulda nógu asskoti, helv... mikið,
og BINGÓ!
Þú færð allt heila klabbið AFSKRIFAÐ.
Húsfreyju er bumbult.
Kling, klang.
Kistan tóm.
Gleðja sig við gullsins hljóm.
Safna aurum. Aura spara.
Eld að sinni köku skara.
Öllum gæðum öðrum hafna.
- Safna.
Kling, klang.
Kistan hálf.
Kistan- hún er sálin sjálf.
Lofa, svíkja,
sníkja.
Kaupa, selja,
telja.
Smjaðra, smjúga,
sjúga.-
Allra óskum neita.
Brögðum beita.
Reita-
lagða úr annars ull.
Ekki um álas hirða.
Ekkert virða
nema gull.
Kling klang.
Kistan full.
He, he...Ormagull.
Kistan var að guði gjörð.
Grafa í jörð.
Grafa í jörð.
"Nirfillinn", Davíð Stefánsson.
Kvæði þetta eftir Davíð tileinkar húsfreyja öllum
"grúppíum" með milljarða í afskriftir og fyrrum
lánaglöðum bankaeigendum á litla Fróni.
Góðar stundir og gangi ykkur vel að greiða upp
"myntkörfulánin".....ekki verða þau afskrifuð!
Afskrifa líklega milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heiður Helgadóttir, 31.10.2009 kl. 15:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.