20.9.2009 | 13:22
Ó, snakilli fúllyndi...
...House!
Eru nú dagar þínir taldir?
Ó, vei!
Og það vegna "fótafúa".
Ó, nei!
Húsfreyja hefur átt margar góðar
stundirnar fyrir framan imbann með þeim fúllynda.
Og skemmt sér konunglega yfir
hugaræfingum, heilabrotum og
þrautum House og liðsmanna,
yfir furðulegum og framandi sjúkdómum
er ætíð hrella skjólstæðinga þeirra.
Og merkilegt nokk rata þeir allra dularfyllstu ætíð
í hendur House og kó......sjúkrahúsið er þeir eiga að
starfa á, virðist reyndar gera út á nánast
óþekkta og fátíða sjúkdóma.....og reka sig samt.
En Hugh Laurie er bísna góður leikari, að mati húsfreyju
og sjálfsagt að hann njóti sín á öðrum vígstöðum en sem
"lappalaus og hundfúll" spítalaspæjari.
En hans verður saknað sem House, af húsfreyju.
Hans snakillla fúllyndis og verður að grafa djúpt,
til að finna "mannlegar tilfinningar"-persónuleika.
Jamm.
En máske mætti senda House til "kraftaverkalæknis"
í næsta þætti, og láta lækna "fótafúann"....bara sisona.
Annað eins hefur nú skeð í imbanum......
Góðar stundir á Sunnudegi.
Of erfitt að leika Dr. House | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
já ég á eftir að sakna hans líka
Sigrún Óskars, 20.9.2009 kl. 16:50
Já, blessaður karlinn...en eigum vonandi eina, tvær seríur eftir, kollega með þeim fúllynda.
Sigríður Sigurðardóttir, 21.9.2009 kl. 20:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.