22.8.2009 | 13:20
Hálf búslóðin með!
Bóndi húsfreyju dæsti mæðulega.
"Þetta er bara vika", hann beindi
orðum sínum til húsfreyju, Bárunnar og
Svölunnar.
"Væri gott ef þið þyrftuð ekki helminginn
af búslóðinni með ykkur, bíllinn er að verða fullur
og þetta kemst ALDREI allt fyrir".
Bóndi ábúðafullur.
"Ég er bara með smávegis af fötum í einu
horninu á annarri litlu ferðatöskunni".
Húsfreyja leit yfir bakpoka, töskur og tuðrur
sem hlaðist höfðu upp frammi í forstofu.
"En þetta er bara það allra nauðsynlegasta,
plús 2 fullir íþróttapokar af dóti stelpnanna,
og ein þokkalega stór tuðra, full af saumadóti,
teikniblokkum, dagbók, trélitum, lestrarefni
og spilum, sem var á snærum húsfreyju",
húsfreyja hnyklaði brýrnar.
"Varla hafði skottið í bílnum skroppið saman"!
Hún rölti niður að bílskúrnum, og gægðist á farteskið
sem þegar var komið í bílinn.
Tvennar stórar og fyrirferðamiklar vöðlur,
stór veiðikassi, þykk flispeysa bónda og regnúlpa
ásamt kippu af vökva í áldósum.
Tók nær helminginn af plássinu í skotti bílsins.....
og veiðistangir ekki komnar ofan í það.
"Jamm, og bara smávegis af fötum í einu horninu
á lítilli ferðatösku", hugsaði húsfreyja sposk.
Rauk aftur upp tröppur og inn í forstofu.
"Þetta er ekkert mál. Komum þessu öllu fyrir með
lagni og góðum vilja....notum auða sætið aftur í
við hlið stepnanna fyrir tjaldið og annað smotterí".
Húsfreyja ákveðin og komin í ham.
Bóndi dæsti mæðulega.....
En inn í bíl komst ALLUR farangur, húsfreyja með
"spariveiðistöngina" við hlið sér frammí og tuðruna
sína við fæturnar.
EKKERT MÁL!
Annar ganglimur húsfreyju "sofnaði" að vísu fljótt,
saman beygður og krumpaður, húsfreyja höktandi þar með
eins og trana með slæma fótasveppi við stöðuvatn í Afríku,
þá stöðvað var í piss-stopp, næringarstopp og almennt
"þurfum að komast út úr bílnum-stopp".
En ferðin norður í Vesturhópsvatn gekk ljómandi vel.
Ekki málið.
Tengdó tóku vel á móti ættmennum í bústað sínum.
Tuttugu og þrír voru í grilli á laugardegi í sól og smá golu.
Veiði var dræm og net léleg.
Veiddist einna helst á stengur, en silungar voru fremur smáir.
Haugur af frændsystkinum Bárunnar mætti og það var mikið
fjör í hornsílaveiði, berjatínslu, fótbolta, spilamennsku.....og
tölvuleikjum.
Peyjarnir gátu ekki slitið sig frá tölvum sínum í "heila viku" og
mættu með einar þrjár fartölvur.
Svo var "Foolballmanager" spilaður grimmt.....stelpurnar
botnuðu lítið í "aðdráttarafli" kaupa og sölu á leikmönnum,
endalausum nafnalistum og tölum og svo 5 mínútna mínifótboltaleikjum,
þar sem oftast var tapað en sjaldnast unnið.
Þær fóru í ævintýraleiki með sitt dót, róluðu, príluðu,
veiddu síli og spiluðu Olsen Olsen "upp og niður"....rústuðu
eldra fólkinu í spilamennskunni.
Peyjar náðust einstaka sinnum út úr tölvuveröld sinni í
"alvörufótbolta" úti við, eða út á vatn á bátnum að veiða.
Stelpurnar fóru oftar út á vatnið að veiða en þeir, og þegar
kom að smá rannsóknaferð afa á sjúkrahúsið á Akureyri,
voru þær heiðursfarþegar ferðarinnar.
Akureyri var sólrík og falleg, og gaman að rölta um.
Skemmtiferðaskip bundið við bryggju.
Annar hver akureyringur mælti á ítalska tungu í
göngugötunni.
Fengu Báran og Svalan að kaupa litfagra límmiða, og var boðið í
mat á Glerártorgi.
Þær alsælar.
Í bústað fór heldur að fjara út af fólki eftir helgina.
Aðeins 8 urðu eftir alla vikuna.
Eina nótt var svo gerð "árás" á áttmenningana.
Fuglahópur...? þrestir...? starrar mættu á svæðið
og gáfu frat í liðið.....nei, "hrat" í liðið.
Sólpallur, sólpallshúsgögn, grindverk og stéttar
voru "sterkfjólublá" að lit, af fugladriti að morgni dags.
Tengdamútta eintóm gæði..."þeir hafa fengið svona illilega
í magann af berjaátinu, aumingjarnir", um leið og hún skrúbbaði og
þvoði mesta óhroðann burt.
Húsfreyju grunaði að herská sveit "svartliða" (starra) hafi fengið
nóg af bévítans ágangi sumarbústaðafólks í "berjalandi þeirra",
og ákveðið að leita hefnda.
Dundað sér við níðingsverkið í skjóli nætur, og flogið hlakkandi
á brott þegar dagaði.
"Berjadrullubyltingin"!
Samanber "búsáhaldabyltingin" niðri á Austurvelli.
Húsfreyja og bóndi ákváðu að geyma veiði og berjatínslu
einn dag, og brugðu sér til ferða með skvísurnar tvær
og tvo peyja, sem höfðust við illan leik frá tölvum sínum.
Skruppu að Hvítserki...og bak við Hvítserk á háfjöru.
Krakkar dönsuðu hrifin í kringum serkinn í sólinni, og Viktor (9 ára)
vildi hringja í Dagblaðið, og láta vita af "stórfrétt aldarinnar"!
Húsfreyja hafði aldrei séð Hvítserk nema umlukinn bláu hafi,
og var næstum búin að kippa upp símanum og bjalla í
fjölmiðla.....bara svona ef þetta væri einu sinni á 100
ára fresti- atburður!
Bóndi var ekki viss...kannski hafði hann heyrt um þetta áður!
En síðan var haldið að Tjörn á Vatnsnesinu, dólað heim
í bústað aftur með bullandi bílveikan Viktor.
Veður versnaði heldur á fimmtudegi eftir 5 sólríka
og hlýja daga...og á brottfarardegi var snjór niður í miðjar
hlíðar í öllum fjöllum....brrr.
En veiði glæddist með versnandi veðri, og stærri fiskar veiddust.
Tengdó fékk nóg af berjum í bláberjasultuna sína, og drengir
allir verið reknir a.m.k. einu sinni sem "footballmanagers".
Var góð vika norðan heiða, að mati húsfreyju, og hún með
harðsperrur af öllu röltinu í berjamó og upp á hól að hringja
til að tilkynna heila heilsu, líf og limi til sinna ættingja.
Snjóinn skildi hún eftir norðan heiða, og er búin að
vera í því að sinna klögunarfullum ketti, sem var að mestu
einn heima, aðeins með fósturdóttur á matarvaktinni.
En bað næst.
Góðar síðsumarsstundir.
Athugasemdir
skemmtileg ferð - þú skrifar líka alltaf svo skemmtilega
Sigrún Óskars, 23.8.2009 kl. 11:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.