Kerlingarfálan...

340x_trolls_01  ...hún "Ísbjörg" er búin að

  ergja húsfreyju verulega þetta árið.

  Hefur legið á gluggum og

  hangið á hurðarhúnum landsmanna

  sú argvítans kerling, um all nokkurt skeið.

  Argandi og gargandi:  MEIRA, MEIRA, MEIRA!

  Skinhoruð og ófrýnileg.

  Fylgir illfyglinu helvískur pólitískur ódaunn,

  útlend skítalykt af breskum og hollenskum uppruna

  og mergjuð kreppupestarstybba sem alla ætlar lifandi að drepa.

  Og alverst af öllu er að kerlingarherfan er brennimerkt á hægri rasskinn:

  "Made by Icelandic Vikings and their bankers"!

  Ja, svei!

  Nú bara verða menn og konur að hysja upp um sig brækurnar

  á Alþingi, og "leysa" þetta bévítans ólukkumál

  þannig að íslenska þjóðin megi vel við una.

  Svo mörg voru þau orð.

  Góðar stundir.


mbl.is Funda um Icesave um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Óskars

algjörlega sammála þér - góðar stundir

Sigrún Óskars, 23.8.2009 kl. 14:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband