Fyrirsögnin hitti....

  ....húsfreyju beint í hjartastaðWink.

  Enda ber konan sama skírnarnafn

  og hún.

  Gleður það húsfreyju mjög aðTURKEYEATHAM

  "Sigríður þessi" sé eigi vanhæf, og vonar

  heitt og innilega að nefndin drífi sig nú að

  störfum þeim er fyrir liggja, en hætti að

  tjá sig um hlutina fyrirfram í fjölmiðlumWhistling.

  Vill hún að nefndin skili heiðarlegum og ábyrgum niðurstöðum

  og helst fyrir lok árs 2009!

  En þar sem húsfreyja þekkir vel til vinnubragða

  "nefnda" hér upp á Fróni,

   verður hún víst að gefa nefndarfólki smá sjens,

  og óskar eftir niðurstöðum eigi síðar, en þegar Frónbúar borga síðustu greiðsluna

  í "Ísbjargarmálinu" (Icesave), eða í "allra allra" síðasta

  lagi þegar bretarnir hætta að flykkjast til landsins

  að skoða "mergjaða hryðjuverkamenn"LoL.

  Voru annars skemmtilegar og skondnar fréttir á sveimi

  í dag.

  Johnsen lundalaus, komin með "kalkúna" í bjargsig

  út í "úteyjar".

  Er sjálfsagt búinn að kaupa inn einhvern helv...

  helling af "risastórum háfum" fyrir kalkúnaveiðina

  Eyjamanna, þá gott fuglakjöt vantar á Þjóðarann!

  Bíst húsfreyja við, að það verði lítið mál fyrir Johnsen

  að "kenna" kalkúnum þessum "flugtökin" og verður gaman að

  sjá "flykkin" svífa tignarlega yfir Eliðaey og Bjarnarey...og

  "gloggglogggglogg-söngur" þeirra mun bergmála um Dalinn

  í stað hins hefðbunda ...aaaaaaaaa.. lundansDevil.

  Nú ef ekki gengur að kenna hæsnfuglunum flugið,

  má altént alltaf gefa þeim ærlegt spark í afturendann

  fram af næstu bjargbrún......Tounge beint í rúmgóðan

  háf bjargklífandi veiðimannsLoL!

  Jamm....snilld Johnsen og félaga er við brugðið!

  Svo fannst húsfreyju þeir efnilegir líkkistusmiðirnir

  á Suðurnesjunum.

  Þar er náttúrulega "eilífðarbíssness" kominn af stað hjá

  þeim.

  "Endalaus" eftirspurn eftir glæsilegum viðarhylkjum,

  og kúnnarnir "pottþéttir".......þarf nánast ekkert að

  auglýsa, þörfin er svo mikil og jöfnHalo.

  Suðurnesjamenn geta farið út í bísnness þennan

  af "dauðans alvöru", fjárfest í öruggum "endalokum"

  kúnnanna....og þess vegna jafnvel tryggt afkomendum sínum

  "elífðarstarf" með 100% gróða.....um alla ókomna tíðGrin.

  Þurfa Suðurnesjamenn máske að ræða við Skógræktarmenn Ríkisins um

  að herða á "ræktun trjáa" hér uppi á litla Fróni, og

  frábiðja sér "skógarruplandi Trölla" í bæjarstjórnir

  í lengstu lögWhistling....en eru að öðru leyti í bísna góðum málum.

 Jamm, allt í góðum gír hjá "bankahrunshrjáðum" Frónbúum,

  og okkur leggst alltaf eitthvað til.

  En karl húsfreyju þarf í kompjúterinn.

  Góðar stundir og gleðilegan kalkúnaríkan Þjóðara.

 


mbl.is Sigríður ekki vanhæf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiður Helgadóttir

Heiður Helgadóttir, 27.6.2009 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband