Sjálfstæðismenn ánægðir...

Troll  ...með sinn "Trölla" í bæjarstjórn.

  Enda vinur vina sinna, elskur að

  fjölskyldu sinni og greiðvikinn maður með afbrigðum...

  ..svona eins og margir sjálfstæðismenn í pólitíkWhistling.

  Það eina sem má finna honum til vansa,

  er hve "illa honum er við tré" sem flækjast

  fyrir stórvirkum vinnuvélum þeirra KópavogsbúaPinch.

  Sér í lagi var þetta ekkisens 30 ára trjárusl Skógræktar

  Ríkisins að flækjast fyrir Trölla og hans mönnum,

  hér um árið 2007, uppi í HeiðmörkGetLost.

  En það var nú árið "sem Trölli stal skóginum"

 eins og Sigmund Moggans orðaði það svo snilldarlegaDevil.

  Í dag eru nýir og breyttir tímar, og allir búnir að gleyma

  alfriðum "burtruddum"  trjáreitum í Heiðmörkinni....

  sei, sei já!

  Það geta ekki allir verið elskir að trjám og fögrum gróðri,

  það skilja allir Frónbúar.....og svo má altént gera nokkra

  "timburmenn" úr trédótaríinu þegar búið er að ryðja því niður....

  nú eða bara skella því í geymslu í "fiskikör", eins og hérna um

  árið hjá TröllaWink.  (Muna bara að "ísa" velDevil.)

  En mannvinur mikill, foringinn í Kópavogi, og hugsar vel um sitt fólk....

  það finna sjálfstæðismenn vel og kunna að meta.

  "Ber er hver að baki nema......!

   Megi allir fulltrúaráðsfundir Kópavogs verða jafn spennandi

  og í kvöld.

  Góðar stundir.

 

 


mbl.is Vilja ekki að Gunnar hætti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóhannesdóttir

knús á þjóðhátíðardegi

Guðrún Jóhannesdóttir, 17.6.2009 kl. 12:39

2 Smámynd: Sigrún Óskars

var ekki kominn tími á kónginn?

þjóðhátíðarkveðja

Sigrún Óskars, 17.6.2009 kl. 22:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband