13.6.2009 | 12:19
Frábær móðir...
...frú tófa.
Og útsjónarsöm.
Bjargar ungviði sínu dótaríi
að leika sér með,
skreytir innganginn að greni sínu
og í leiðinni reddar hún sjálfri sér "gæðastundum"
í sólinni á meðan yrðlingar hennar atast
í skódýrðinni.
Þetta er framtaksemi sem húsfreyju líkar vel.
Kennir að vísu örlítið í brjósti um "halta eða berfætta"
bæjarbúa í Foehren, sem ramba stíft í skóverslanir
og leita sér "öruggs fótabúnaðs helst með þjófavörn".
En húsfreyja telur að tófur jarðar eigi harma að hefna á
mannskepnunni, sem veitt hefur refi, fláð af
þeim skinnið, og skellt um háls sér og herðar....
öldum saman.
Sér ekki nokkuð að því að tófur stundi skórupl
í mannabyggð, svona til að jafna aðeins "skorin".
Bara gaman að þessu.
Húsfreyja svo með málningapensil á lofti í gær,
fékk náðarsamlegt leyfi frá bónda að mála veggi
neðst við sólpallinn.
Húsmálun vonandi að ljúka um helgina.
Bóndi ennþá bakk af verkjum í brotinni öxl,
átta ára djásnið á útopnu í leikjum úti alla daga....með
smá vinkonukrytur,vafstur og útundanvesen af og til.
Sjálfskipaður "flugubani og pöddumorðingi" heimilisins
af kattarkyni að sjálfsögðu, á annríkt um þessar mundir.
Vill út að "sinna störfum sínum" í bítið á morgnana.
Hoppar og skoppar kattarballet á tveimur fótum,
í grænu grasinu, og reynir að hremma flugur og fiðrildi
með framfótum.
Er bísna seig að ná flugunum, í fiðrildin á hún ekki sjens.
Pöddunum sem slæðast upp á sólpall kemur hún einnig
fyrir kattarnef...í orðsins fyllstu merkingu, og "mer" þær
niður í frumeindir með mjúkum þófum.
Leggst svo dösuð af darraðadansinum við veiðina, á heitan
pallinn og þvær sér og veltir í sólinni.
Ætli það sé ekki hrein dásemd að vera köttur á sumrin?
Húsfreyja veit að bóndi hennar öfundar köttinn óendanlega
af lipurð og "fallfærni"!
Lítið um að kettir axlarbrjóti sig í henni veröld.
Húsfreyja svo á leið austur fyrir fjall.
Djásnið spennt að hitta frændsystkyni sín, og gleyma
vinkonuveseni við trampolínhopp, skopp, leiki og gleði.
Afrifnar neglur og glóðaraugu strákannna, bara krydd í tilverunni hjá henni.
Húsfreyja fer í kaffispjall og gleði til múttu og systur.
En bað næst.
Góðar stundir og njótið helgarinnar.
Refur stal 100 skóm | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
skemmtileg lesningin hér hjá þér í dag mín kæra
Guðrún Jóhannesdóttir, 14.6.2009 kl. 18:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.