22.4.2009 | 18:34
Hana! Jóhanna þegjandi...lúsug...
....nei, smá grín.....hás!
Nú bregðast krosstré sem önnur.
Ekki orðavant þessari konu, svona yfir höfuð,
nema þegar hún reynir að reka seðlabankastjóra.
En ekki ólíklegt, margar óþverrapestir
í gangi úti í þjóðfélaginu.
Voru þrír starfsmenn húsfreyju veikir
í morgun, og náðust ekki inn nema tveir
í afleysingar...svo húsfreyja fékk sinn
fyrsta undirmannaða dag sem stjóri.
Heyrði svo í fréttum, húsfreyja, að
einhverjir eitursnjallir í vísindageiranum,
tóku sig til og fundu upp "sérdeilis óþrifalega"
lækningu við astma.
Og hvað er til ráða, þjáist fólk af mergjuðum astmaskít,
eins og iðulega hendir húsfreyju í flensupestum?
Jú, skreppa og verða sér úti um "höfuðlús" í stórum stíl.
Er svo agalega gott fyrir ónæmiskerfið.
Eða svo segja rannsóknir hinna eitursnjöllu vísindamanna,
á músaræflum nokkrum.
Lúsugi músahópurinn sat "alsæll" úti í horni og klóraði sér
í sífellu, "astmalaus"!
En þrifalegu, óværulausu mýsnar stóðu
á öndinna af astmaskít, við það eitt að rölta einn
rúnt í völundarhúsinu.
Ekki fylgdi sögunni, hvor músahópurinn lifði lengur
eða hvor hópurinn virtist njóta lífsins betur.
Nú er húsfreyju spurn: Hvað eru vísindamenn
sem rannsaka áhrif "óværu" á astmaskít í
nagdýrum, með í laun?
Og niðurstöður þessar eru gagnlegar hverjum?
Og máske ætlaðar asmaveiku fólki sem hvatning og uppörvun?
Bara hætta þessu baðstússi alltaf hreint, ná sér
í verulega skæða lús, og deyja úr eigin skítalykt
og sýktum "klórsárum, í staðinn fyrir að deyja Drottni sínum
í astmakasti?
Eða er þetta bara svona "vísindalega áhugaverð", en
"gjörsamlega gagnslaus" rannsókn, sem gleður
hjörtu þeirra er engan astmann hafa?
Lengi verið vitað mál, að þrifnaðaræðið sem greip
þjóðina upp úr miðri síðustu öld, er miður gott fyrir
ónæmiskerfið okkar mannanna, enda ofnæmissjúkdómar
í algleymingi......þarf enga lúsarannsókn á músum
til að berja því inn í hausinn á landanum.
Allt best í hófi....og snyrtimennska er gott mál,
á meðan þvottabrjálæði og þrifnaðaræði geta reynst
heilsu manna erfið.
Kvöldmatur næst.
Góðar stundir.
Þögn Jóhönnu til umræðu í Færeyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Bölvað skjaftæði er þetta, reyndu nú að vera með e-ð bitastætt fyrst þú ert að þessu. NN
Dódó (IP-tala skráð) 22.4.2009 kl. 22:47
Hehehe...stundum hreinlega nenni ég ekki að vera með e-ð bitastætt, Dódo. Sérstaklega eftir að hafa hlustað á vaðal og kjaftæði í "miljónastyrkþegum" í fjölmiðlum.....held bara áfram á sömu línu og þeir.
Þakka innlitið!
Sigríður Sigurðardóttir, 23.4.2009 kl. 12:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.