2.4.2009 | 15:35
Þegar menn búa í glerhúsi...
....og eiga einhver helv....
helling af grjóti í ofanálag,
er ekkert annað að gera en að
grýta því.
Ætli hann hafi látið hjákonuna
undirrita snepla í þríriti, með
2 lögfræðinga sér við hlið, þá
þau gerðu samkomulagið?
Eiginkonan máske verið "vottur"?
Greinilegt að maður þessi veit ekkert
hvað hann á að gera við aura sína.
Sólundar kannski einhverju smotteríi
af auðæfum sínum í málshöfðun gegn
hjákonunni...sem sjálfsagt á ekki bót
fyrir rassinn á sér...og lendir í skuldafangelsi
vinni sá gamli málið.
Jamm, mannskepnan er furðulegt dýr,
og ekki allt gáfulegt sem hún tekur sér
fyrir hendur.
Húsfreyja og 8 ára djásnið svo báðar
veikar heima í dag.
Flensuskítur, hiti, beinverkir og hósti að
hrjá þær.
Búnar að horfa saman á "Home Alone",
"Mister Bean" í listaverkavandræðum í Hollywood
og baka eina afmælisköku handa bónda húsfreyju.
Átta ára djásnið situr nú með restina af súkkulaðikreminu
á kökuna og hámar í sig...búin að setja "Mister Bean"
aftur á byrjunarreit og hlær dátt af óförum kauða
í Ameríku.
Hún verður orðin hress á morgun, spáir húsfreyja.
Húsfreyja ætlar að hósta sig inn í rúm, og ná
sér í góðan lúr....ef hún fær frið fyrir höfuðverk
og beinverkjum.
góðar stundir.
Auðjöfur í mál við hjákonuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
vona að flensuskíturinn hypji sig út á hafsauga - bara sem lengst í burtu.
Sigrún Óskars, 4.4.2009 kl. 09:51
Þakka þér, Sigrún mín.....er svona 4-7 daga hitafjandi...svo ég er ekki laus enn!
Sigríður Sigurðardóttir, 6.4.2009 kl. 09:22
sendi batakveðjur
Sigrún Óskars, 6.4.2009 kl. 12:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.