20.3.2009 | 21:21
Ljótu hálvitarnir enn og aftur?
Húsfreyja smellti sér í það
að lesa báðar blaðagreinarnar
eftir vinnu.
Lewis greinilega í stjörnustuði, og
með "Ameríska hamborgarafitu"
fasta í augnkrókum sínum, og sér
ekkert nema "fitukeppi" og "erfðagallað"
fólk á öðru hverju götuhorni hér í borginni
við sundin bláu....og mest af því í "svörtum
fötum" á "gjaldþrota" hóteli með 101 heimilisfang.
Er svo greinilega farinn að lenda í erfiðleikum
með heyrn sína, heyrir dularfullar "bílsprengingar"
með einhverri "ofurheyrn" út um alla borg...getur meira
að segja nefnt "bíltegundina".
Fær samt svítu, og gamlan lúinn auglýsingabækling
til að lesa, þrátt fyrir meint gjaldþrot hótelsins...og
erfðagallaða svartklædda þjóna....
Asskoti fín þjónusta það hjá gjaldþrota hóteli!
Jamm, Moody sem 7 ára Frónbúi er svo
sármóðgaður yfir þessari útfærslu á frónversku
kreppunni, enda hann eflaust að upplifa hana
"erfðagallalausa og bílsprengjulausa" eins og
megin þorri landsmanna.
Helv..., andskoti dýrt að fá sér snarl í matinn
hér uppi á litla Fróni í dag, er húsfreyja innilega
sammála Moody.
En ekki svo slæmt að vera líkt við hálfvita,
sér í lagi "Ljótu hálfvitana".....
bara skemmtilega vinalegir og músíkalskir
náungar hér uppi á litla Fróni.
Góðar stundir.
![]() |
Íslendingar engir hálfvitar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sigrún Óskars, 22.3.2009 kl. 13:29
Vissulega höguðu sér hér margir eins og hálfvitar -því miður ekki eins og hin ágæta hljómsveit Ljótu hálfvitarnir- og eiga ekkert gott skilið.
Breytir engu um það að Lewis þessi er latur, illa upplýstur og ekki einu sinni sérlega góður penni, þó hann rembist við að vera fyndinn.
Saga íslenska hrunsins er þess eðlis að það þarf ekki að fara með fáránlegar rangfærslur til að "dramatísera" hana.
Hildur Helga Sigurðardóttir, 24.3.2009 kl. 11:11
Sammála þér Hildur, enda ekki annað hægt, en að gera grín að svona blaðamennsku.
Sigríður Sigurðardóttir, 30.3.2009 kl. 09:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.